Way Down We Go

Það er eitthvað við upphafið á Way Down We Go með KALEO sem lætur manni finnast eins og að undirstaðan sé farin að bresta áður en maður hefur sjálfur áttað sig á því.

Lagið biður ekki kurteislega um athygli. Það kemur djúpt að neðan, hægt, þungt og verður ekki umflúið. Svo kemur þessi óþægilega spurning: Uppskerum við eins og við sáum?

Ég er ekki viss um það.

Svo einfalt eða réttlátt er lífið ekki.

Gott fólk veikist, missir ástvini, verður fyrir svikum og bíður ósigur. Aðrir koma illa fram við allt og alla en sofa samt vært á nóttunni og láta sér létt um liggja. Lífið virðist ekki alltaf gera greinarmun þar á.

Það sem ég heyri í laginu er því ekki fyrst og fremst boðskapur um refsingu. Ég finn fyrir fallinu. Því augnabliki þegar eitthvað sem maður taldi traust gefur sig. Stundum höfum við sjálf grafið undan því en á öðrum stundum hefur einhver annar kippt undan okkur fótunum. Og stundum greiðir lífið okkur högg án þess að nokkur skýring fylgi.

Og niður förum við.

Hægt og hljótt niður á við

Það þarf ekki stóráfall til að manni fari að hnigna.

Stundum gerist ekkert sem sérstök ástæða virðist til að hafa orð á.

Maður fer bara smám saman að búast við minna af lífinu. Það sem maður ætlaði sér verður að einhverju sem maður var einu sinni að hugsa um að gera og aldrei varð af. Vinurinn sem maður ætlaði að hringja í hefur ekkert heyrt frá manni í þrjú ár. Hugmynd sem áður vakti hjá manni tilhlökkun bíður enn. Kannski seinna.

Maður hrynur ekki, heldur venst þessu.

Og þess vegna tekur maður kannski ekki eftir því hvað er að gerast.

Við getum vanist ótrúlega mörgu, líka því sem við hefðum aldrei átt að sætta okkur við. Drögum aðeins úr væntingunum og svo síðan meir og meir. Hættum að fara á ákveðna staði. Hættum að hafa samband við fólk. Hættum að gera áætlanir sem gætu orðið að engu.

Að lokum finnst okkur þetta fábreyttara líf bara eðlilegt.

Við köllum það jafnvel þroska.

Segjumst hafa lært að vera raunsæ en stundum er það sem við köllum raunsæi ekkert annað en vonleysi sem við viljum ekki kannast við.

Enginn heyrði skellinn.

Það varð enginn skellur.

Þetta gerðist smátt og smátt.

Allt gott að frétta

Karlar eru oft býsna lagnir við að láta líta út fyrir að allt sé í lagi.

Spyrðu mann hvernig hann hafi það og hann svarar:

„Bara fínt.“

Kannski líður honum líka bara fínt.

En kannski er hjónabandið að fara í hundana, sjálfstraustið horfið og fjárhagsáhyggjurnar halda fyrir honum vöku. Hann hefur ekki sofið almennilega í margar vikur og er farinn að velta fyrir sér hvort nokkur tæki eftir því ef hann léti sig hverfa um stund.

Svarið er samt hið sama:

„Bara fínt.“

Mörgum okkar var kennt að leysa vandamálin fremur en að tala um þau. Það hefur sína kosti. Endalaust tal gerir ekki við þakið, kemur biluðum bíl í gang eða lýkur erfiðu verki.

En það eru takmörk fyrir því hvað þögnin getur gert fyrir okkur.

Þegar við ráðum ekki við vandann reynum við stundum að fela hann. Við tökum að okkur að vera okkar eigin upplýsingafulltrúar og fullvissum alla um að staðan sé góð, þótt húsið að baki okkur standi í ljósum logum.

Það þarf ekki að vera meðvituð blekking. Stundum kunnum við einfaldlega ekki að koma orðum að því sem amar að. Stundum viljum við enga vorkunn. Og stundum er það síðasta sem okkur vantar að einhver halli undir flatt og spyrji hvort við höfum leyft okkur að finna fyrir tilfinningunum.

Við viljum lausn.

Hún fæst bara ekki alltaf þegar við þurfum á henni að halda og meðan við bíðum getur farið að halla undan fæti án þess að við segjum nokkrum frá því.

Við viðurkennum það kannski ekki einu sinni fyrir sjálfum okkur.

Svo kemur kjaftshöggið

Lífið fer þó ekki alltaf hægt í sakirnar.

Stundum fellir það mann á einu augabragði.

Sjúkdómsgreining. Andlát. Skilnaður. Gjaldþrot. Atvinnumissir. Mannorðshnekkir. Svik frá manneskju sem við treystum. Áfall í fjölskyldunni sem breytir öllu.

Eitt símtal getur gert það sem tíu erfið ár gátu ekki.

Allt í einu liggjum við í gólfinu.

Stundum er talað um seiglu eins og sá sem hana hefur finni varla fyrir högginu. Hann er sleginn niður á mánudegi, lærir af því á þriðjudegi og er mættur aftur á miðvikudagsmorgni, sterkari en nokkru sinni fyrr.

Svona snyrtilega gengur þetta sjaldnast fyrir sig.

Sum högg gera mann ráðvilltan. Það getur tekið tíma að átta sig á því hvað hefur gerst. Að ná sér felst ekki endilega í að drífa sig aftur í vinnuna, bera sig vel og lýsa því yfir hvað reynslan hafi verið lærdómsrík.

Stundum þarf maður fyrst að viðurkenna að höggið hafi hitt.

Það getur verið erfitt fyrir þann sem hefur vanist því að aðrir treysti á hann. Hann kann að skipuleggja, verja sína, leysa vandamál og bera byrðar. Það er honum síður tamt að vera sjálfur sá sem þarf aðstoð.

Það verður hins vegar enginn sterkari við að þykjast ekki hafa fundið til.

Hnefaleikamaður sem liggur í gólfinu og kannast ekkert við að hafa verið sleginn niður virðist ekki sérlega raunsær.

Hann virðist helst vera meðvitundarlaus.

Það skiptir máli hvernig við stöndum upp

Oft er sagt að það skipti ekki máli hversu oft við föllum heldur hversu oft við stöndum aftur upp.

Það er nokkuð til í því, en þar með er ekki allt sagt.

Það skiptir ekki aðeins máli hvort við stöndum upp. Það skiptir líka máli hvernig við gerum það.

Við getum staðið upp, staðráðin í að gera sömu mistökin aftur. Við getum fyllst beiskju og varið næsta áratug í tilgangslaus átök, eða haldið áfram í sama slagnum vegna þess að stoltið leyfir okkur ekki að viðurkenna að við hefðum betur valið okkur annað viðfangsefni.

Við erum þá komin á fætur.

En það er ekki víst að okkur hafi farið fram.

Stundum þurfum við að læra eitthvað og stundum að breyta um stefnu.

Það getur þýtt að segja skilið við hlutverk, samband eða áform sem við höfðum lengi talið óaðskiljanleg frá okkur sjálfum. Stundum þurfum við að biðjast afsökunar. Stundum að ákveða að sá sem særði okkur hafi þegar tekið frá okkur nægan tíma og eigi ekki lengur hlutverk í lífi okkar.

Við þurfum ekki að afsaka það sem hann gerði til að hætta að láta það stjórna lífi okkar.

Stundum þurfum við jafnvel að þiggja framrétta hönd.

Það er engin skömm að því.

Einhver annar getur hjálpað okkur á fætur meðan við söfnum aftur kröftum til að standa sjálf í fæturnar.

Uppskerum við eins og við sáum?

Þessi spurning leiðir mig lengra í huganum en lagatextinn sjálfur.

Ákvarðanir okkar hafa auðvitað afleiðingar. Við höfum öll hunsað viðvaranir, látið stoltið ráða, treyst röngu fólki eða haldið áfram þótt orðið væri nokkuð ljóst að við værum á rangri leið.

Það er freistandi að kenna örlögunum um allt sem fer úrskeiðis.

Það er ekki síður freistandi að kenna sjálfum sér um allt.

Hvorugt gefur þó rétta mynd.

Sumt köllum við yfir okkur sjálf. Annað gera aðrir okkur og sumt gerist vegna tilviljana, sjúkdóma, óheppilegra aðstæðna eða einfaldlega vegna þess að lífið getur verið miskunarlaust.

Viskan felst í að kunna að greina þar á milli.

Ef ég olli vandanum ber mér að taka ábyrgð. Það þýðir ekki að ég eigi að refsa sjálfum mér það sem eftir er ævinnar. Tilgangurinn er að læra af því og gera betur næst.

Ef einhver annar olli mér skaða þarf ég ekki að neita því til að sýnast göfugur og skilningsríkur. Ég ætti heldur ekki að láta hann ráða því hvernig ég lifi það sem eftir er.

Og ef engum er um að kenna, ef lífið sló einfaldlega til, er kannski ekki hægt að draga neinn til ábyrgðar og enginn tilgangur í að velta fyrir sér hver hafi átt hvað skilið.

Þá er aðeins eitt eftir: næsta skref.

Þegar maður fer að kunna við sig í gólfinu

Það er ákveðin hætta fólgin í því að hafa verið sleginn niður aftur og aftur.

Maður fer að venjast því að liggja þarna.

Það getur virst öruggara en að standa upp og eiga á hættu að fá annað högg. Ef maður vonar ekki mikið verða vonbrigðin kannski minni. Ef maður reynir ekki getur manni ekki mistekist. Og ef maður ætlar sér lítið getur enginn hlegið að því þegar ekkert verður úr.

Það er á vissan hátt hægt að skilja þessa hugsun.

En þannig getur tímabundinn ósigur orðið að varanlegum raunveruleika.

Eftir nokkurn tíma er maður farinn að koma sér fyrir í gólfinu, raða í kringum sig og útskýra að sér hafi nú reyndar alltaf þótt best að búa á jarðhæð.

Maður hefur ekki beinlínis gefist upp.

Maður er bara hættur að reyna að standa í lappirnar.

Þarna koma þessar tvær leiðir saman. Skyndilegt áfall fellir okkur og síðan sættum við okkur smám saman við að liggja áfram á gólfinu.

Við réðum kannski ekki fallinu.

En að liggja niðri það sem eftir er má ekki verða eina framtíðin sem við sjáum fyrir okkur.

Við þurfum ekki að verða þeir sömu og áður

Þegar við tölum um að ná okkur gerum við oft ráð fyrir að markmiðið sé að verða aftur nákvæmlega eins og við vorumm en sá maður er kannski ekki lengur til.

Reynslan breytir okkur. Missirinn breytir okkur. Aldurinn breytir okkur. Sár geta gróið og samt skilið eftir sig ör. Við getum endurheimt styrkinn þótt við verðum aldrei aftur jafn grunlaus. Verið vandlátari á hvað við tökum að okkur og jafnframt áttað okkur betur á því hvað skiptir máli. Ein framtíðarsýn getur brugðist en önnur tekið við sem okkur hafði ekki áður komið til hugar.

Markmiðið er ekki alltaf að snúa aftur.

Stundum er það frekar að rísa upp sem sá maður sem við erum nú orðnir: öðruvísi, sterkari og vissari um hvað við viljum gera við lífið sem er eftir.

Það getur þýtt að byrja upp á nýtt á þeim aldri þegar öðrum finnst að við ættum að fara að draga okkur í hlé. Að skapa eitthvað nýtt án nokkurrar vissu um að það muni takast.

Höggið eitt og sér gerir okkur ekki sterkari. Það getum við hins vegar orðið með því sem við tökum okkur fyrir hendur eftir það. Enduheimt eða bætt heilsuna, lært af reynslunni, sett öðrum mörk, þegið aðstoð og fundið okkur verðug verkefni.

Við getum uppgötvað að við komumst af án einhvers sem við töldum okkur aldrei geta misst. Því getur fylgt frelsi sem við þekktum ekki áður.

Að byrja aftur á efri árum þarf ekki að þýða að gera minni kröfur til lífsins.

Við höfum öðlast meiri reynslu, þekkjum okkur betur og erum kannski síður tilbúin að láta tímann sem við eigum eftir fara í vitleysu.

Það getur beðið okkar meira en við sjáum fyrir okkur meðan við liggjum í gólfinu.

Við föllum öll einhvern tíma

Þangað leiðir lagið mig.

Ekki að dómi um hver hafi átt fallið skilið, heldur að þeirri hugsun að enginn komist í gegnum lífið án þess að eitthvað láti undan.

Fyrr eða síðar föllum við öll.

Við missum fólk. Það sem við töldum öruggt bregst. Við missum stöðu okkar, áform fara út um þúfur og stundum þekkjum við varla sjálf okkur lengur. Aldurinn tekur líka frá okkur ýmislegt sem okkur fannst áður sjálfsagt.

Spurningin er ekki hvort við getum varist hverju einasta falli.

Það getum við ekki.

Spurningin er hvað við gerum þegar við liggjum niðri.

Liggjum við kyrr og köllum það raunsæi?

Drögum við okkur inn í sífellt fábreyttara líf vegna þess að við þorum ekki að reyna aftur?

Bíðum við eftir að einhver bjargi okkur en höfnum um leið hverri framréttri hendi?

Eða gefum við okkur þann tíma sem við þurfum, horfum heiðarlega á það sem gerðist og tökum síðan til við að koma okkur aftur á fætur, þótt það gangi stirðlega í fyrstu?

Það er engin trygging fyrir því að við föllum aldrei aftur.

Það gerum við raunar næstum örugglega.

En kannski felst hugrekkið ekki í því að halda sér alltaf á fótunum.

Kannski felst það í að neita að gera gólfið að heimili sínu til frambúðar.

Previous
Previous

Að vera einn er ekki það sama og að vera einmanna

Next
Next

Tónlistin sem fylgir okkur í gegnum lífið