Að vera einn er ekki það sama og að vera einmanna

Það er munur á því að vera einn og að vera einmana.

Annað segir til um hvort einhver sé hjá okkur. Hitt segir til um hvernig okkur líður innra með okkur.

Einn einstaklingur getur búið einn, verið mikið út af fyrir sig og sjaldan fundið til einmanaleika. Annar situr við fullt matarborð, innan um fólk og samræður, en finnst hann einhvern veginn standa utan við allt saman.

Stundum getur manni fundist maður jafnvel meira einmanna í hópi sem maður á ekki samleið með en þegar maður er alveg einn.

Þegar ég er einn þarf ég að minnsta kosti ekki að láta eins og ég falli inn í hópinn.

Og ég er reyndar sjaldnast alveg einn.

Ég á hundinn minn, Skugga.

Hann ber nafn með rentu og fylgir mér nánast hvert fótmál, en samvera okkar snýst um miklu fleira. Hann gefur mér ómælda gleði, hlýju og vináttu.

Félagsskapur leysir ekki allt

Stundum er talað um einmanaleika eins og lausnin sé augljós: Það þurfi bara að koma fleira fólki í kringum þann sem er einmana.

Þetta er ekki alltaf svo einfalt.

Það er gott að vera innan um fólk þegar þar er hlýja, traust og maður finnur að maður á heima í hópnum, en það er einnig hægt að vera með öðrum án þess að finna til nokkurrar samkenndar eða nálægðar.

Maður getur farið á fundi, setið á kaffihúsum, verið í félögum og skipst á kurteislegum orðum við fjölda fólks án þess að segja nokkurn tíma það sem manni liggur í raun á hjarta.

Það að tala saman þýðir ekki endilega að menn nái saman.

Stundum verður einmanaleikinn meira áberandi í hópi. Allir hinir virðast kunna óskrifuðu reglurnar, hafa áhuga á því sama og vita hvenær á að hlæja. Maður tekur þátt en fylgist um leið með sjálfum sér utan frá og reynir að standa sig í hlutverkinu.

Þegar maður kemur heim og lokar á eftir sér getur það því verið léttir að vera loksins einn.

Næðið getur verið góður félagsskapur

Sum þögn er tómleg.

Önnur er kærkomin.

Þegar við veljum að vera ein fáum við stundum hvíld frá væntingum annarra. Við getum hugsað, lesið, unnið, hlustað á tónlist eða leyft huganum að róast.

Sumir þurfa meira næði en aðrir.

Það þýðir ekki að þeim sé illa við mannkynið. Þeim hentar það kannski bara betur í hæfilegum skömmtum.

Það sem skiptir máli er ekki fyrst og fremst hvað við verjum mörgum stundum ein. Spurningin er frekar hvort næðið geri okkur gott eða hvort við séum smám saman að loka okkur af.

Og getum við leitað í félagsskap þegar okkur langar til þess? Er einhver sem við getum snúið okkur til?

Skuggi tekur skyldur sínar alvarlega

Skuggi eltir mig út um allt.

Ég fæ ekki einu sinni að fara einn á klósettið.

Hann sefur undir rúminu mínu og kemur með mér hvenær sem því verður við komið. Í bílnum aðstoðar hann oft úr aftursætinu með því að stinga trýninu fram á milli framsætanna.

Ég veit ekki alveg hvaða þáttur í aksturslagi mínu kallar að hans mati á þetta eftirlit.

Kannski telur hann sig sjá um leiðarlýsinguna og þær hættur sem beri að varast. Betur sjái fjögur augu en tvö.

Þegar hann er aftur á móti í pallhúsi bílsins hefur hann öðru hlutverki að gegna. Reyni einhver að taka fram úr mér geltir hann eins og heiður fjölskyldunnar, og hugsanlega öryggi alls íslenska vegakerfisins, hvíli á honum.

Enginn tekur fram úr athugasemdalaust.

Hann gefur mér margar ástæður til að brosa og hlæja í dagsins önn. Göngutúrarnir okkar, ákafinn í honum og þessi ótvíræði persónuleiki gera samveruna dýrmæta. Hann er vinur minn og mér finnst gott að vera með honum.

Svo eru það rólegri stundirnar.

Ef ég er þreyttur, niðurdreginn eða sit bara einn kemur hann oft til mín án þess að ég kalli.

Hann biður ekki um skýringar.

Hann segir mér ekki að hugsa jákvætt, skipuleggja mig betur eða líta á björtu hliðarnar.

Hann er einfaldlega hjá mér.

Við mannfólkið vanmetum oft hvað það getur verið mikils virði.

Dýr hafa líka sinn persónuleika

Þeir sem hafa ekki búið náið með hundum tala stundum eins og trygglyndið eitt einkenni þá.

En hundar hafa ólíkan persónuleika rétt eins og fólk.

Á undan Skugga átti ég annan hund, Rebba.

Rebbi varð sextán ára og dó í fanginu á mér, rétt eins og báðir foreldrar mínir.

Hann var ákaflega tryggur en hafði líka ákveðnar skoðanir á því hvernig ætti að haga lífinu.

Hann borðaði nánast allt nema hundamat.

Pítsa var í lagi og flest allur annar matur okkar en hundamatur var greinilega fyrir neðan hans virðingu.

Ég sagði einhvern tíma í gríni að ég þyrfti líklega að fara að fela rauðvínið fyrir honum.

Stundum líktist hann frekar öldruðum ættingja sem hefði flutt inn, tekið út heimilishaldið og ákveðið að ýmsu þyrfti að breyta.

Skuggi er öðruvísi.

Hann er ekki síður mikill karakter en vill helst vera nálægt mér, fylgjast með og birtast þegar hann finnur að ég gæti þurft á félagsskap að halda.

Báðir voru tryggir.

Þeir sýndu það bara hvor með sínum hætti.

Sorgin er raunveruleg vegna þess að vináttan var það

Það getur orðið ótrúlega tómlegt þegar dýr deyr.

Daglegt líf hefur snúist um ótal smáatriði sem maður hugsar varla út í: fótatak fyrir aftan sig, matartímana, göngutúrana, hljóð úr öðru herbergi og þá vissu að einhver bíði þegar maður kemur heim.

Svo er húsið allt í einu öðruvísi.  Allt orðið breytt og tómlegt.

Stundum reynir fólk að hugga þann sem misst hefur hund með orðunum: „Þetta var nú bara hundur.“

Það er lítil huggun fyrir þann sem hefur deilt með honum hversdeginum árum saman.

Hundur kemur ekki í stað allra mannlegra samskipta. En vináttan við hann er engu að síður raunveruleg og getur skipt okkur gríðarlega miklu máli.

Hann hefur verið með okkur í gegnum venjulega daga, góða og slæma, veikindi, áhyggjur, vinnu og hvíld. Allar þessar hversdagslegu stundir sem ævin er að svo stórum hluta gerð úr.

Þegar hann er farinn verður þögnin önnur.

Hjá hundinum þarf maður ekki að standa sig

Í samskiptum við annað fólk þurfum við oft að útskýra okkur.

Af hverju við erum þreytt, af hverju við erum þögul eða hvers vegna eitthvað sem öðrum finnst smávægilegt hefur farið svona í okkur.

Hundurinn krefst ekki slíkrar greinargerðar.

Hann tekur eftir raddblæ, hreyfingum og venjum. Stundum virðist hann finna að eitthvað hafi breyst og færir sig nær áður en við höfum sjálf fundið orð yfir það.

Við þurfum ekki að vera fyndin, hress, farsæl eða skemmtileg í öllum samskiptum.

Hundurinn spyr ekki hvort dagurinn hafi verið nógu afkastamikill.

Hann verður ekki fyrir vonbrigðum þótt okkur hafi enn ekki tekist að verða betri útgáfa af sjálfum okkur fyrir fimmtudag.

Hann þekkir okkur og vill vera hjá okkur.

Það er mikil huggun í því að vera tekið þannig, án þess að þurfa að sanna nokkurn skapaðan hlut.

Við þurfum þó líka annað fólk

Þetta þýðir auðvitað ekki að dýr geti eða eigi að koma í stað fólks.

Mannleg samskipti gefa okkur annað: samtal, sameiginlegar minningar, sjónarhorn annarrar manneskju og aðstoð við flóknari viðfangsefni lífsins.

En við þurfum ekki endalausan fjölda fólks í kringum okkur.

Nokkur náin sambönd geta verið meira virði en stór kunningjahópur þar sem okkur finnst við aldrei geta verið alveg við sjálf.

Það ætti ekki að vera markmið í sjálfu sér að vera sífellt innan um fólk.

Við þurfum að finna að við eigum einhvers staðar heima.

Sumir finna það hjá fjölskyldunni. Aðrir í vináttu, vinnu, sameiginlegum áhugamálum eða félagsstarfi. Oft kemur þetta úr fleiri en einni átt.

Og á rólegri stundum getur félagsskapurinn líka haft fjóra fætur og sofið undir rúminu.

Einmanaleiki er ekki veikleikamerki

Karlar eiga oft erfitt með að viðurkenna að þeir séu einmana.

Það getur hljómað eins og ósigur. Eins og allir aðrir séu farsælir í lífinu en slíkt boð til okkar hafi týnst í póstinum.

En einmanaleiki segir ekkert um að maður sé óáhugaverður, veikburða eða ófær um að mynda tengsl.

Hann segir bara að það vanti ákveðna nánd í líf manns.

Það lagast ekki endilega við að ganga í fyrsta félagið sem býðst. Maður sem finnur sig ekki þar getur komið heim enn meðvitaðri um einmanaleikann en áður.

Það sem vantar eru samskipti sem hafa einhverja merkingu fyrir okkur.

Það getur tekið tíma að finna þau. Byrjunin þarf þó ekki að vera stór í sniðum. Eitt einlægt samtal. Eitthvað sem tveir hafa gaman af að gera saman. Einhver annar sem manni líður vel með, jafnvel einnig þegar hvorugur segir neitt.

Við þurfum að þekkja muninn

Maður getur kosið að vera einn. Einmanaleikinn er sjaldnast eitthvað sem maður velur.

Næðið getur veitt frið. Einmanaleikinn getur tekið gleðina úr deginum.

Þegar við erum ein getum við fengið svigrúm til að hlusta á eigin hugsanir. Þegar við erum einmana getum við farið að trúa því að enginn annar vilji heyra þær.

Þess vegna eigum við ekki að líta á alla sem eru mikið einir sem vandamál sem þurfi að laga.

Sumum líður ágætlega einum. Aðrir eru stöðugt innan um fólk en líður samt illa.

Við þurfum að spyrja um annað en fjöldann af fólki sem maður hittir.

„Er einhver sem þú getur verið alveg þú sjálfur með?“

Svarið við þeirri spurningu segir okkur töluvert meira.

Stundum kemur félagsskapurinn óumbeðinn

Skuggi leysir ekki öll vandamál lífsins.

Hann getur ekki gefið læknisráð, þótt það hafi reyndar aldrei komið í veg fyrir að ýmsir aðrir geri það.

Hann getur ekki rætt framtíð Nordic Wolves eða hjálpað mér að skipuleggja vinnuna.

Gagnsemi hans við aksturinn er einnig nokkuð vafasöm, þótt hann sé allur af vilja gerður og á tímum þurfi einnig að sleikja mann í framan.

En hann gefur mér vináttu, hlýju og mikla gleði. Og þegar hann finnur að ég er þreyttur eða einn kemur hann til mín.

Ég þarf ekki að bjóða honum.

Stundum nægir það til að breyta því hvernig mér líður heima hjá mér.

Maður getur verið einmana innan um margt fólk og sáttur við lífið í mannlausu húsi.

Og húsið er ekki beinlínis tómt þegar tryggur skuggi fylgir manni úr einu herbergi í annað.

Jafnvel alla leið inn á klósett.

 

Previous
Previous

Áhugamál eru ekki bara til að eyða tímanum

Next
Next

Way Down We Go