Tónlistin sem fylgir okkur í gegnum lífið

Tónlist hefur líklega fylgt mannkyninu frá örófi alda.

Einhvern tíma hefur einhver uppgötvað að hægt væri að slá takt með tveimur spýtum. Kannski voru fyrstu tónleikarnir haldnir með tveimur steinum, holum trjábol og nokkrum hraustlegum urrhljóðum. Hugsanlega var klappað upp. Um það verður ekkert fullyrt.

Hitt vitum við að hver kynslóð hefur eignast sína tónlist.

Við leikum tónlist á gleðistundum og þegar við syrgjum. Hún fylgir trúariðkun, mótmælum, tilhugalífi, vinnu og hernaði. Stundum eru það orðin sem hrífa okkur. Stundum þarf engin orð. Fáeinir tónar geta vakið tilfinningu sem okkur hefði aldrei tekist að lýsa í löngu máli.

Fyrir mína kynslóð var rokkið ekki bara ný tónlistarstefna. Það var hluti af uppreisn. Tónlistin, textarnir, klæðaburðurinn og síða hárið ögruðu gildum eldri kynslóðarinnar.

Við vorum ekki aðeins að hlusta á tónlist.

Við vorum líka að sýna hver við værum. Eða hver við ætluðum okkur að verða.

Við hlustum hvert með sínu móti

Tónlistarsmekkur er persónulegur.

Þúsundir manna geta hlustað á sama lag á sömu tónleikum og upplifað það á ólíkan hátt. Einn hrífst af taktinum, annar hlustar eftir textanum og sá þriðji er kominn í huganum til manneskju sem hann hefur ekki séð árum saman.

Þess vegna gengur ekki alltaf eins vel og við vonum að kynna uppáhaldslagið okkar fyrir öðrum.

„Hlustaðu nú á þetta,“ segjum við og bíðum spennt eftir kaflanum sem hefur alltaf haft svo mikil áhrif á okkur.

Vinurinn hlustar kurteislega.

Við bíðum eftir að hann verði jafn snortinn og við.

Honum finnst þetta ágætt gítarsóló.

Það þarf ekkert að vera að honum. Hann hefur bara ekki þær minningar sem gera lagið að því sem það er í okkar huga.

Með árunum tengjast sum lög svo mörgu að fyrstu tónarnir nægja til að rifja upp heilan kafla úr ævinni. Fólk sem við þekktum. Staðir sem við dvöldum á. Ferðalög, sigrar, ástarsorg og missir.

Sumar þessara minninga eigum við með öðrum. Aðrar eigum við ein. Við getum sagt frá atburðunum, en það er ekki hægt að fá aðra manneskju til að upplifa þá nákvæmlega eins og við gerðum.

Hún getur hlustað á sama lagið.

En hún á ekki sömu minningarnar.

Áramótin í Svíþjóð

Gamlárskvöld á bráðamóttökunni í Reykjavík gat stundum líkst einhvers konar  stríðsástandi.

Flugeldar sprungu um alla borg og áfengið flaut. Menn duttu, slógust og brenndu sig. Sumum tókst að gera þetta allt þrennt í einu. Enginn sem mætti á vakt þetta kvöld bjóst við rólegri nótt.

Á fyrsta ári mínu í sérnámi í Svíþjóð þurftum við læknarnir að skipta með okkur hátíðarvöktunum. Við unnum annaðhvort um jól eða áramót. Ég fékk áramótavaktirnar, fór heim til Íslands með fjölskyldunni um jólin og sneri síðan einn aftur til Svíþjóðar.

Ég bjó mig undir að hafa nóg að gera.

En það gerðist varla nokkur skapaður hlutur.

Örfáir sjúklingar komu með vandamál sem mér fannst sum hver næstum hægt að leysa í gegnum síma. Á miðnætti fór ég upp á þak spítalans. Ekki einn einasti flugeldur á lofti.

Morguninn eftir hjólaði ég heim. Það var bjart og fallegt vetrarveður og hrím á trjánum.

Samt fannst mér ég hálfpartinn hafa verið svikinn um áramótin. Ég var einn, fjölskyldan heima á Íslandi og hátíðin hafði eiginlega farið fram hjá mér.

Þegar heim kom mundi ég að ég hafði komið við í fríhöfninni á leiðinni. En ég átti líka plötuspilara og plöturnar mínar.

Ég settist á rassinn á gólfið og fór að hlusta. Plöturnar lágu á víð og dreif í kringum mig og ég valdi eina af annarri.

Þá komu fram minningarnar.

Hvert lag rifjaði eitthvað upp. Andlit, staði og atvik sem höfðu tengst því. Minningar sem ég gat ekki deilt til fulls með neinum, jafnvel þótt einhver hefði setið þarna hjá mér. Þær voru mínar. Ég sat innan um plöturnar og upplifði þær aftur.

Ég hef stundum hugsað að ég ætti að gera þetta einu sinni eða tvisvar á ári. Gefa mér tíma til að sitja einn með gömlu plöturnar og sjá hvað rifjast upp.

Ég hef hins vegar

aldrei látið verða af því.

Kannski er heldur ekki hægt að endurtaka svona stund. Aðeins að muna hana.

Rokkið, diskóið og næsta uppreisn

Á eftir rokkinu og hippamenningunni kom diskóið.

Fólk dansaði, klæddi sig upp og virtist ekki velta innihaldi textanna jafn mikið fyrir sér. Kannski er það ósanngjarnt mat hjá manni sem hafði þegar fundið sína tónlist. Flestum kynslóðum finnst eitthvað athugavert við tónlistarsmekk þeirrar næstu.

Svo kom uppreisnin aftur, með öðrum hætti, í pönkinu og síðar rappinu. Þar fékk reiðin að heyrast, ásamt gagnrýni á samfélagið og reynslu þeirra sem stóðu utan við það.

Sú tónlist varð aldrei mín.

Aldurinn hefur sitt að segja. Tónlistin sem við kynnumst ung getur náð sérstaklega sterkum tökum á okkur. Síðar erum við stundum farin að gæta tónlistarsmekksins eins og einkalóðar, með læstu hliði og skilti sem varar við óviðkomandi umferð.

Sjálfur leita ég enn í gömlu uppáhaldslögin með Pink Floyd, Eagles og Leonard Cohen.

Yngra fólki finnst kannski kominn tími til að ég hlusti á eitthvað nýrra.

Mér finnst hins vegar engin ástæða til að skipta um tónlistarsmekk bara af því að bæði ég og plöturnar erum farin að eldast.

Pink Floyd og spurningarnar sem sitja eftir

Hjá Pink Floyd hafa bæði tónlistin og textarnir fylgt mér.

Another Brick in the Wall snertir nokkuð sem ég hef alla tíð verið mótfallinn: að steypa fólk í sama mót, ætlast til að allir fylgi sömu fyrirmælum og verði öðrum sem þægilegastir.

Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega þægilegur og er ekki einn um þá skoðun.

Það sem ég tengi við þetta lag á skilið sérstaka umfjöllun. Þar koma við sögu uppeldi, skólaganga og það sem maður lætur af hendi af eigin sannfæringu til að falla í kramið hjá öðrum.

Lagið Time hefur líka aðra merkingu fyrir mig nú en þegar ég var ungur. Það er erfitt að hlusta á umfjöllun þess um árin sem líða án þess að hugsa um eigin ævi. Allt það sem maður taldi sig hafa nægan tíma til að gera.

En það sem við frestum bíður ekki endilega eftir okkur. Við breytumst sjálf, fólkið í kringum okkur líka, og sum tækifæri hverfa.

Svo er það Learning to Fly, sem kom eftir að Roger Waters hætti í hljómsveitinni.

Ég heyri í því óöryggi og efasemdir, en líka viljann til að reyna. Og síðan gleðina yfir því að uppgötva að maður geti gert eitthvað sem áður virtist utan seilingar. Við getum verið komin með áratuga reynslu og samt þurft að læra eitthvað alveg frá grunni.

Þessi lög hef ég hlustað á árum saman.

Þau gefa mér enn tilefni til að hugsa.

Eagles og það sem við heyrum með aldrinum

Ég hef farið á tvenna tónleika á ævinni.

Eagles og Leonard Cohen.

Mér finnst það alveg nóg. Ég sá þá bestu.

Tónlist Eagles getur virst létt og þægileg við fyrstu hlustun en þegar betur er að gáð segja lögin margar sögur um eirðarleysi, freistingar, einmanaleika, óhóf og eftirsjá. Um menn sem hafa komið sér upp lífi og líferni sem þeir rata síðan ekki á nokkurn hátt út úr.

Maður heyrir til dæmis annað í Desperado eftir því sem árin líða. Ungum manni getur fundist töluverður glæsibragur yfir einfaranum sem vill hvergi festa rætur. Síðar áttar hann sig kannski betur á því við hverju er verið að vara.

Take It Easy er léttara yfirbragðs. Titillinn einn og sér er hins vegar ágætis ráðlegging fyrir menn sem hafa árum saman haldið að svarið við öllum erfiðleikum sé að leggja enn harðar að sér.

Hotel California er áfram fallegt, dularfullt og dálítið ógnvekjandi. Menn hafa túlkað það á ótal vegu. Kannski lifir það meðal annars vegna þess að við getum fundið þar eitthvað úr eigin lífi án þess að öll þurfum að komast að sömu niðurstöðu.

Take It to the Limit hefur líka breyst í mínum eyrum. Ungur taldi maður sjálfsagt að reyna á mörkin og helst færa þau. Síðar uppgötvar maður að líkaminn, vinnan, samböndin og tíminn ráða líka einhverju um það hversu langt verður farið.

Lögin eru þau sömu.

Það erum við sem höfum breyst.

Leonard Cohen og sprungurnar

Leonard Cohen lá ekkert á.

Hann fjallaði um ást, löngun, mistök, trú og myrkur, oft með húmor sem lét lítið yfir sér. Í lögunum hans rúmast mótsagnir mannsins. Við erum sjaldnast eins einföld eða samkvæm sjálfum okkur og við viljum vera láta.

Flestir þekkja Hallelujah. Það er þó ekki víst að allir hafi hlustað jafn vel á textann.

Önnur lög hans hafa ekki síður fylgt mér: Everybody Knows, I’m Your Man og You Want It Darker, sem kom út undir lok ævi hans.

Svo er það hugsunin um sprunguna sem sé í öllu.

Hún hefur lengi höfðað til mín.

Við höfum öll okkar sprungur. Þær hverfa ekki með aldrinum. Sumar verða bara sýnilegri.

Þær bera þó ekki aðeins vitni um áföll og skaða. Þær geta líka orðið til þess að aðrir nái til okkar. Að við tökum við nýrri reynslu og sjáum eitthvað í sjálfum okkur sem við höfðum ekki áður áttað okkur á.

Þegar ég hugsa um sprungurnar hjá Cohen sé ég ljósið fara í báðar áttir.

Það kemst inn til okkar en eitthvað af okkar eigin ljósi getur líka komist út til annarra.

Sá sem heyrir af erfiðleikum okkar, mistökum eða missi getur kannski þekkt þar eitthvað úr eigin lífi. Við verðum honum skiljanlegri. Hann finnur að hann er ekki einn um sína reynslu.

Ég hef litla aðdáun á því þegar fólk leggur allt kapp á að vera með óaðfinnanlega ásýnd. Mér finnst það yfirborðslegt og stundum grunar mig að þar ráði óttinn við að aðrir fái að sjá sprungurnar.

Ég á auðveldara með að treysta manneskju sem þorir að sýna eitthvað af sjálfri sér.

Þetta er mín eigin útfærsla á mynd Cohens. Mér finnst við ekki þurfa að fela allt sem hefur reynst okkur erfitt til að eiga eitthvað erindi við aðra.

Bjartsýnin hjá Cohen var ekki af því tagi sem menn hengja upp á vegg með fallegri mynd.

Hjá honum gat lífið verið gallað og erfitt en samt búið yfir fegurð, reisn og húmor.

Það finnst mér meira virði.

Þegar börnin uppgötva plöturnar okkar

Tónlistin kemur stundum aftur eftir óvæntum leiðum.

Elsta dóttir mín, sem er nú fjörutíu og sex ára, varð undrandi þegar hún fann á unglingsárunum plötur með Meat Loaf og Queen í safninu mínu. Tónlistin sem hún taldi tilheyra sinni kynslóð hafði verið til í hillunum hjá mér allan tímann.

Foreldrar geta stöku sinnum komið börnum sínum á óvart.

Hún upplifði auðvitað ekki plöturnar eins og ég. Hún kynntist þeim á öðrum tíma, hlustaði með öðru fólki og eignaðist sínar eigin minningar við þær.

Lögin urðu hennar án þess að hætta að vera mín.

Það er dálítið merkilegt að milljónir manna geti hver um sig fundist þeir eiga sama lagið alveg út af fyrir sig.

Ekki bara fortíðarþrá

Það má auðvitað segja að við höldum í gömlu tónlistina vegna þess að við söknum æskunnar.

Stundum er það rétt.

Við munum okkur yngri og hraustari. Og gjarnan heldur betur útlítandi en gömlu ljósmyndirnar benda til.

En þetta snýst um fleira.

Lag getur minnt okkur á kjark sem við höfðum einu sinni. Vakið sorg sem við höfum ekki hugsað um lengi. Rifjað upp kynni af manneskju sem okkur þótti vænt um. Það getur líka sýnt okkur hvað hefur breyst í okkur sjálfum og hvað er enn óbreytt.

Og það er vel hægt að eignast nýjar minningar við gömul lög. Þau eru ekki bundin við þann tíma þegar við heyrðum þau fyrst.

Tónlist getur hjálpað manni í gegnum æfingu, gert einveruna notalegri og breytt venjulegri bílferð í hálfgert kvikmyndaatriði. Hún getur tengt fólk saman, þótt menn séu ekki upp á sitt virðulegasta þegar þeir reyna að hlusta saman með sitt hvort heyrnartólið úr sama parinu.

En það sem mér finnst kannski mestu skipta er hvernig tónlistin tengir saman æviskeiðin.

Við erum ekki þeir sömu og við vorum tvítugir, þrítugir eða fertugir. Líkaminn breytist og hlutverk okkar líka. Við missum fólk og stundum finnst okkur eitthvað af okkur sjálfum hafa farið með því.

Svo heyrum við eitthvað lag og í þrjár eða fjórar mínútur sitja ungi maðurinn, faðirinn, læknirinn, ferðalangurinn og eldri maðurinn allir saman í sama herberginu.

Tónlistin gerir okkur ekki unga aftur en hún getur minnt okkur á að ungi maðurinn hvarf aldrei alveg.

 

Previous
Previous

Way Down We Go

Next
Next

Just Another Brick in the Wall?