Just Another Brick in the Wall?

Múrsteinar hafa ýmsa góða eiginleika.

Maður veit að hverju maður gengur með þá. Þeir passa á sinn stað og halda húsinu uppi án þess að spyrja óþægilegra spurninga um það sem verið er að byggja.

Þetta eru ágætir eiginleikar í múrsteinum.

Ég er langt frá því að vera sannfærður um að þeir eigi að vera æðsta markmið manneskjunnar.

Another Brick in the Wall með Pink Floyd hefur lengi höfðað til mín. Mér hefur aldrei líkað sú hugsun að fólk eigi að koma úr skóla, mótast í starfi og fara í gegnum lífið þannig að það verði að lokum allt úr sama mótinu.

Ég hef lengi reynt sjálfur að komast hjá því.

En ég hef líka þrátt fyrir það eytt töluverðum tíma í kerfunum sem sjá um mótunina.

Sérkennilegt námsval

Framhaldsskólanámið mitt tók fjögur ár.

Strax á fyrsta ári var ég nærri því að hætta og segja þetta gott. Mér fannst skólinn hefta mig. Ég vildi meira svigrúm til að hugsa, hreyfa mig og uppgötva hlutina sjálfur.

Ég hélt þó áfram og lauk náminu.

Síðan ferðaðist ég um heiminn í tæp tvö ár, oft einn. Kynntist stöðum, fólki og ólíkum lífsháttum. Enginn hafði sérstakan áhuga á því hvort ég gæti svarað rétt á prófi eða hver námsárangur minn hefði verið.

Eftir þetta ákvað ég, af ástæðum sem ég skil enn ekki til fulls, að fara í sex ára læknisfræðinám.

Eftir tveggja ára frelsi taldi ég mig greinilega þurfa að sitja inni töluvert lengur.

Að læra réttu svörin

Læknisnámið sem ég fór í er eitt dæmi um það sem ég gagnrýni en vonandi hefur margt breyst frá þeim tíma.

Það sem fór mest fyrir brjóstið á mér var hversu lítið sjálfstæð hugsun virtist hafa að segja um námsárangurinn.

Ég hefði kosið skýr námsmarkmið, krefjandi spurninga og ábyrgð á að lesa mér sjálfur til, skoða ólíkar heimildir og öðlast skilning á efninu á gagnrýnin hátt.

Alltof oft virtist verkefnið þó vera mun einfaldara: leggja á minnið það sem kennarinn hafði sagt og skila því aftur þegar eftir því var kallað.

Það var gríðarlega miklu troðið í okkur. Minna fór fyrir því að við lærðum að spyrja hvort allt sem okkur var sagt stæðist skoðun.

Síðustu þrjú árin hætti ég að mestu að mæta í fyrirlestra. Tvær vinkonur mínar, sem mættu samviskusamlega og glósuðu allt, leyfðu mér að fá glósurnar lánaðar til að ljósrita.

Einkunnirnar hækkuðu.

Ljósritunarvélin var greinilega orðin mikilvægur þáttur í menntun minni.

Þetta hentaði mér ágætlega en það voru ekki beinlínis góð meðmæli með kennslufyrirkomulaginu.

Ég var orðinn betri í að skila því sem prófin kröfðust. Það er ákveðin færni, en hún segir ekki alla söguna um það að læra læknisfræði.

Ég tók nú samt við skírteininu

Það væri þægilegt að segja þessa sögu eins og ég hefði verið frjálsi hugsuðurinn sem neitaði að láta undan.

Samt hélt ég áfram og lauk náminu.

Ég stóðst prófin, tók við prófskírteininu og varð læknir.

Hvað sem mér fannst um fóðrunina kom ég sjálfur út úr henni sem einn af afurðunum.

Það er ekki hægt að horfa framhjá þeirri mótsögn.

Fæst getum við gengið út úr sérhverri stofnun sem við erum ósátt við. Við þurfum menntun, vinnu og tekjur. Stundum lærum við reglurnar vegna þess að annars fáum við aldrei að sinna því sem við höfum áhuga á.

En þótt maður læri að komast í gegnum kerfi þarf maður ekki að komast að þeirri niðurstöðu að allt við það sé gott.

Læknisnámið veitti mér þekkingu sem ég þurfti á að halda en hin raunverulega læknisfærni kom þó síðar, þegar ég þurfti að nýta þessa fyrri þekkingu við aðstæður sem voru töluvert flóknari en prófspurningarnar.

Sjúklingar komu með óljós einkenni, misvísandi upplýsingar og heila ævi að baki. Í náminu var fjallað um hvern sjúkdóm fyrir sig en í starfinu þurfti ég að átta mig á manneskjunni í heild.

Að muna rétt svar og kunna að leggja mat á erfiðar aðstæður er tvennt ólíkt.

Hvað þarf maður mörg próf áður en maður má byrja?

Mér finnst ástæða til að staldra við þegar menntun verður að sífellt lengri bið eftir leyfi til að vinna.

Framhaldsnám getur verið verðmætt. Rannsóknir sömuleiðis. Doktorsgráða getur haft að baki sér margra ára erfitt og vandað starf.

En þegar næsta gráða er fyrst og fremst sótt vegna þess að hún virðist nauðsynleg til að fá stöðu verðum við að mega spyrja til hvers hún sé.

Verður viðkomandi færari um að sinna starfinu?

Eða aðeins líklegri til að koma til greina?

Ef rannsóknargráða verður að aðgöngumiða að læknisstarfi, en rannsóknir skipa síðan lítinn sess í starfinu sjálfu, er ástæða til að skoða samhengið þar á milli.

Háskólanám á að efla þekkingu og sjálfstæða hugsun. Það má ekki snúast um að bæta sífellt við sig prófgráðum í von um að fá loksins vinnu.

Umbúðirnar og innihaldið

Starfsstéttir geta haft sín einkennismerki og við virðumst stundum leggja ótrúlega mikið upp úr þeim.

Læknir lætur til dæmis varla mynda sig án þess að hengja hlustpípu yfir herðarnar. Jafnvel þegar myndatakan er löngu ákveðin, enginn sjúklingur nálægur og engin ástæða til að ætla að þurfi að hlusta nokkurn mann.

Er þetta til að sannfæra okkur hin um að hann sé læknir?

Eða þarf hann sjálfur á áminningunni að halda?

Mér hefur alltaf fundist að prófgráðan ætti að halda gildi sínu þótt hlustpípan sé skilin eftir í skúffu eða sloppvasanum meðan myndin er tekin.

Á spítölum má svo sjá skurðstofufólk mæta í matsalinn með skurðstofuhúfuna á höfðinu og maskann lafandi við hálsinn en síðan er hvort tveggja endurnýjað þegar komið er aftur á skurðstofuna.

Þarna er hádegismaturinn orðinn hluti af búningasýningunni. Enginn þarf að velkjast í vafa um úr hvaða deild viðkomandi kom.

Ungir lögfræðingar hafa annan búning. Þeir geta verið svo líkir í jakkafötunum, með bindið og klútinn í brjóstvasanum, að maður freistast til að ætla að þetta fylgi með við útskrift.

Á lögfræðilega hæfnin að sjást á klútnum eða væri verra að treysta manninum fyrir málinu ef hann mætti bindislaus?

Þetta er auðvitað spaugilegt. En það er síður spaugilegt hversu auðveldlega við látum svona merki hafa áhrif á mat okkar á fólki.

Fagmannleg geta þarf að felast í einhverju sem stendur eftir þegar umbúðunu sleppir.

Það sama á við um prófgráðurnar. Viðskiptafræðinám getur kennt manni ýmislegt um fjármál, rekstur og markaði en það skapar ekki eitt og sér dómgreindina eða frumkvæðið sem þarf til að byggja upp fyrirtæki.

Starfsheiti segir mér eitthvað um það sem viðkomandi hefur lært en mig langar samt að vita hvað hann kann í raun og veru.

Þegar starfsheitið verður sjálfsmyndin

Það er auðvelt að kvarta yfir því að vera settur í kassa.

Óþægilegra er að viðurkenna hversu greiðlega við komum okkur stundum fyrir í honum sjálf.

Starfsheitið veitir tilheyrandi sess. Við vitum hvar við stöndum og aðrir fá þægilega skýringu á því hver við séum.

Það getur verið notalegt en smám saman getur okkur farið að þykja meira um vert að verja hlutverkið en að skoða hver við erum orðin innan þess.

Við tökum undir skoðanir starfsfélaganna án þess að velta fyrir okkur hvort við séum þeim í raun sammála. Við vísum spurningu á bug vegna þess að hún kemur frá einhverjum utan hópsins. Verðum pirruð ef okkur finnst ekki sýnd sú virðing sem starfsheitið á að tryggja.

Þá er prófgráðan farin að gera meira en að segja til um menntun okkar.

Hún er farin að hugsa fyrir okkur.

Ég er læknir. Það skiptir mig máli. Ég hef varið stórum hluta ævinnar í að læra læknisfræði og starfa við það en ég vil ekki að það ráði öllu um hvað ég megi hugsa, taka mér fyrir hendur eða verða.

Kassinn merktur „eldri karlmaður“

Með aldrinum bætast við ný fyrirmæli.

Eftir að hafa árum saman verið sagt að mennta okkur, koma okkur fyrir og sinna skyldunum fáum við smám saman skilaboð um að nú væri æskilegt að láta minna á okkur bera.

Vertu skynsamur. Vertu þakklátur. Njóttu þess sem þú átt.

Þetta geta verið ágætis ráð.

Þau geta líka verið kurteisleg leið til að segja manni að framlagi manns sé lokið.

Eldri maður sem ræðst í metnaðarfullt verkefni getur lent í því að fyrsta spurningin snúist um aldur hans fremur en hugmyndina en samt ætti reynslan að gera okkur betur kleift að meta hvað sé þess virði að reyna.

Það er hins vegar furðu auðvelt að taka við nýja hlutverkinu. Við höfum margra áratuga æfingu í að laga okkur að væntingum.

Fyrst lærðum við hvernig góður nemandi ætti að haga sér. Síðan traustur starfsmaður, ábyrgur faðir og virðulegur fagmaður.

Nú stendur okkur til boða að verða hinn þægilegi eldri herramaður og sjálfsagt hægt að fá einhverja viðeigandi peysu sem smellpassar þvi en áður en við tökum slíkt hlutverk að okkur væri rétt að lesa fyrst handritið.

Er eitthvað í því sem okkur langar sjálf að gera?

Kannski vill maður lifa rólegu lífi. Kannski langar mann að stofna fyrirtæki, fara í nám, ferðast eða smíða eitthvað með höndunum.

Það sem skiptir máli er að maður hafi valið það sjálfur.

Við höfum lengi lagað okkur að því sem aðrir ætlast til af okkur. Nú er kominn tími til að ákveða sjálfir hvernig við viljum lifa. Hið nýja samfélag hefur sína heimsmynd en það þýðir ekki að við þurfum að henda okkar fyrir róða.

Við megum enn læra eitthvað nýtt

Örar breytingar geta orðið til þess að eldri mönnum finnist þeir varla kannast lengur við samfélagið sem þeir áttu sjálfir þátt í að byggja upp.

Orðfærið breytist. Verkfærin breytast. Það sem áður var einfalt krefst nú þriggja lykilorða og síma sem þarf fyrst að sannfæra um hver eigandinn sé.

Það er freistandi að segja bara að þetta sé allt saman fyrir unga fólkið en sú afstaða getur orðið til þess að við útilokum okkur sjálfa.

Gervigreind vekur margar spurningar um vinnu og menntun. Hún gefur okkur líka tilefni til að skoða hvað við gætum sjálfir tekið okkur fyrir hendur.

Gæti hún hjálpað okkur að kynna okkur nýtt efni, þróa hugmynd, vinna á öðru tungumáli eða koma af stað verkefni sem við höfum aldrei vitað hvernig ætti að byrja á?

Þær spurningar eiga einfaldlega einnig erindi við eldri menn.

Við þurfum ekki að læra á allt sem nýtt er en við getum valið það sem nýtist okkur við eitthvað sem okkur langar að gera.

Eigin dómgreind þarf samt að vera með í för. Svar verður ekki rétt við það eitt að vera lipurlega orðað í tölvunni. Það væri heldur rýr ávinningur af frelsinu ef við losuðum okkur undan hugsunarlausri hlýðni við annað fólk og létum síðan vél stjórna hugsunum okkar.

Möguleikinn felst í að nýta tæknina til að auka eigið svigrúm.

Maður sem hefur varið fjörutíu árum í að verða góður í einhverju má alveg verða byrjandi í öðru.

Hann þarf ekki að biðjast afsökunar á því.

Sjálfstæð hugsun gerir líka kröfur

Ekki er sérhver regla heimskuleg og ekki sérhver óvenjuleg skoðun gáfuleg.

Ég myndi til dæmis ekki vilja leggjast undir hníf hjá hugmyndaríkum skurðlækni sem teldi líffærafræðina hefta frelsi sitt um of.

Þekking skiptir máli. Kröfur um gæði sömuleiðis. Og það kostar vinnu og aga að verða góður í einhverju.

Það sem ég gagnrýni er þegar það að falla vel inn í hópinn er tekið sem sönnun fyrir hæfni en sá sem vill hugsa sjálfstætt þarf líka að gera kröfur til sín.

Það er auðvelt að vera ósammála. Erfiðara að þekkja málið nógu vel til að færa rök fyrir betri leið.

Við þurfum að skilja hvernig hlutirnir virka til að geta séð hvar gallarnir liggja og útskýrt hvers vegna það ætti að gera þá öðruvísi. Það er ekkert sérstakt afrek að breyta aðferð bara til að geta kennt hana við sjálfan sig.

Og ef ég er sjálfkrafa á móti öllu sem aðrir vilja eru þeir enn að ákveða stefnuna. Ég fer bara í hina áttina.

Frjáls hugur þarf að geta samþykkt góð rök, skipt um skoðun og viðurkennt mistök.

Annars verður uppreisnin bara enn einn einkennisbúningurinn.

Eftir öll árin í hlutverkinu

Þegar komið er fram á seinni hluta ævinnar höfum við kannski eytt áratugum í að verða það sem aðrir þekkja okkur fyrir.

Trausti starfsmaðurinn. Farsæli fagmaðurinn. Ábyrgi faðirinn. Maðurinn sem veit til hvers er ætlast og veldur ekki óþarfa vandræðum.

Sumt af þessu getur verið réttmætt og lýst eiginleikum sem við viljum sjálfir hafa.

En er pláss fyrir eitthvað fleira?

Áhugamálið sem féll aldrei að starfsferlinum?

Skoðunina sem við lærðum að hafa ekki hátt um?

Verkefnið sem okkur langar að ráðast í þótt enginn búist við því af okkur?

Það er þess virði að velta fyrir sér hversu margar ákvarðanir við tökum enn vegna þess að einhver kenndi okkur fyrir löngu hvernig maður í okkar stöðu ætti að haga sér.

Sá hinn sami er kannski löngu látinn.

Við erum enn að fara eftir fyrirmælunum.

Einhvern tíma þurfum við að stíga niður fæti og ákveða hvort við viljum verja árunum sem eftir eru á þennan hátt.

Eftir leyfi frá hverjum erum við eiginlega að bíða?

Fyrrverandi yfirmanninum? Nágrönnunum? Hópi fólks sem hefur aldrei sýnt því minnsta áhuga hvað okkur langar sjálfa að gera?

Við megum svo sannarlega endurskoða hlutverk okkar ef viljinn er fyrir hendi.

Halda því sem við metum, sleppa því sem á ekki lengur við og búa til rými fyrir eitthvað sem við veljum sjálfir.

Það er ekki víst að öllum líki það sem við veljum en allir þessir hinir eiga sitt eigið líf og við okkar.

Að hugsa sjálfur og standa með sér

Það getur þurft múrsteina í vegg.

Samfélagið þarf líka samvinnu, vel unnin verk og fólk sem er tilbúið að sinna skyldum sem eru ekki alltaf spennandi.

Ég kæri mig ekki um að búa í samfélagi þar sem allir telja sig svo sérstaka að einhver annar verði að sjá um nauðsynlegu verkin en samvinna þarf að rúma sjálfstæða hugsun. Maður á að geta tilheyrt hópi án þess að vera eins og allir hinir og fagþekking á að þola spurningar.

Mig langar að vita hvort það sem ég geri sé gagnlegt, hvort ég sé að leggja mitt eigið mat á hlutina og hvort ég geti enn breytt um stefnu þegar ég sé góða ástæðu til þess.

Það skiptir mig meira máli en að falla í kramið.

Eftir öll þessi ár get ég enn ekki sætt mig við að æðsti tilgangur menntunar sé að búa til manneskju sem fellur vel í mótið.

Ég vil frekar að hún hjálpi manni að hugsa — og ekki síður gefi manni kjark til að fylgja hugsuninni eftir.

Previous
Previous

Tónlistin sem fylgir okkur í gegnum lífið

Next
Next

Lífið bíður ekki eftir neinum