Við tölum stundum eins og lífið bíði rólegt eftir því að við verðum tilbúin.
Við ætlum að byrja þegar minna verður að gera í vinnunni.
Við ætlum í ferðina þegar betur stendur á.
Við munum hafa samband við viðkomandi þegar við höfum meiri tíma.
Við ætlum að ráðast í verkefnið þegar búið er að skipuleggja allt, tryggja fjármögnunina og bíða af sér veðrið. Og helst taka til í bílskúrnum líka.
Það er alltaf einhver ástæða til að bíða.
Margar þeirra eru meira að segja skynsamlegar.
Þess vegna er svo auðvelt að láta þær ráða.
Það þarf ekki eina afdrifaríka ákvörðun til að láta lífið fram hjá sér fara. Það getur gerst meðan við teljum okkur vera að beita allri mögulegri skynsemi.
Það stendur sjaldnast alveg rétt á
Ég hef varið stórum hluta ævinnar í að koma ýmsum verkefnum af stað.
Eitt hef ég lært: það stendur sjaldnast þannig á að ekkert mæli gegn því að byrja.
Það vantar næstum alltaf eitthvað. Peninga, tíma, aðstoð, vissu um framhaldið eða samþykki fólks sem hefði hvort sem er aldrei lagt blessun sína yfir þetta.
Ef við ætlum að hafa öll svör á reiðum höndum áður en við hefjumst handa getum við orðið afskaplega vel undirbúin fyrir eitthvað sem við gerum aldrei.
Mín reynsla er sú að stærri verkefni taka yfirleitt lengri tíma og kosta meira en maður gerði ráð fyrir.
Hefði ég vitað fyrir fram um öll vandræðin sem biðu mín hefði ég sennilega aldrei byrjað á sumu af því sem ég er ánægðastur með að hafa gert.
Það þýðir ekki að kostnaður skipti engu máli. Við sjáum bara sjaldnast alla leiðina áður en við leggjum af stað.
En nýtt upphaf þarf heldur ekki alltaf að vera stórframkvæmd. Að læra tungumál eða á hljóðfæri, hefja nám á ný eða þjálfa sig fyrir áskorun sem manni þótti áður óviðráðanleg krefst vissulega einbeitingar. Það þarf samt ekki að umturna öllu lífinu til að hefjast handa.
Við þurfum ekki að leysa úr öllum hugsanlegum vandamálum framtíðarinnar áður en við tökum fyrsta skrefið.
Ég hef fulla trú á góðum undirbúningi. Hann getur komið í veg fyrir dýr mistök og hjálpað okkur að átta okkur á því hvað þarf raunverulega að leysa.
En undirbúningur getur líka orðið virðulegt heiti á því að koma sér undan því að taka af skarið.
Það er alltaf hægt að útbúa eitt skjal í viðbót, fá enn eitt álitið eða finna skúffu sem verður greinilega að taka til í áður en maður getur farið að skrifa bók, byggja upp fyrirtæki eða breyta einhverju í lífi sínu.
Framtíð þín er skúffunni algjörlega óviðkomandi.
Hún verður þarna áfram á morgun.
Við höldum að við höfum meiri tíma
Þegar við erum ung virðist nægur tími fram undan.
Eitt ár er stór hluti af ævi barns. Síðar fara árin að líða með hálfgrunsamlegum hraða. Maður er rétt búinn að ganga frá jólaskrautinu þegar það þarf að draga það fram aftur.
Um tvítugt getur virst í lagi að fresta einhverju um fimm ár.
Eftir fimmtugt horfa fimm ár öðruvísi við.
Samt geta þau liðið hraðar en okkur grunar. Það sem við ætluðum að byrja á í fyrra reynist hafa beðið í tíu ár.
Þetta er það sem hittir mig svo sterkt í laginu Time með Pink Floyd: að bíða eftir að einhver eða eitthvað vísi manni veginn og uppgötva svo hvað mörg ár eru liðin á meðan.
Enginn sagði okkur hvenær við ættum að byrja.
Kannski biðum við eftir því.
Við erum vanir því að fá fyrirmæli um næsta skref. Í skólanum, í vinnunni og í gegnum væntingar annarra til okkar. En enginn hefur það hlutverk að tilkynna okkur að nú sé kominn tími til að gera það sem okkur hefur sjálfa langað til.
Síðan verður lagið enn óþægilegri áminning. Við reynum að vinna upp það sem við misstum af, en árin fást ekki til baka þótt við hlaupum hraðar. Á meðan eldist líkaminn og tíminn sem við eigum eftir styttist.
Á mínum aldri er þetta ekki bara eitthvað til að velta fyrir sér.
Sum tækifærin sem ég hafði eru liðin hjá. Önnur eru enn til staðar, en ég get ekki gengið að því vísu að svo verði um ókomna tíð.
Það þýðir ekki að við eigum að lifa í ótta eins og dauðinn bíði handan við næsta horn. Það er ekki endilega uppörvandi að hugsa stöðugt um dauðann. Til lengdar verður það þreytandi og getur hæglega eyðilagt það sem stefndi í góðan dag.
En við þurfum að átta okkur á reikningsdæminu.
Árin sem við eigum eftir eru færri en þau sem eru liðin og þess vegna verða þau dýrmætari.
Aldurinn á ekki að gera hvern dag að örvæntingarfullu kapphlaupi við klukkuna. Hann ætti hins vegar að fá okkur til að hugsa okkur betur um áður en við látum enn eitt árið fara í eitthvað sem skiptir okkur ekki lengur máli.
Alltaf að fara að byrja
Sumir eru alltaf rétt að fara að byrja.
Þeir ætla að skrifa, ferðast, læra, byggja, laga eitthvað, fara eitthvert, snúa aftur eða loksins segja það sem þarf að segja.
Það er heilmikið um að vera í framtíðinni hjá þeim.
Nútíðin fer að mestu í undirbúning.
Að lokum verður frestunin svo samofin lífinu að maður hættir nánast að taka eftir henni.
Þetta er ekki alltaf leti. Við getum kallað óttann þolinmæði, fullkomnunaráráttuna vandvirkni og óvissuna þörf fyrir að kynna okkur málið betur.
Ég þekki þetta allt.
Maður getur sagst bíða eftir rétta tækifærinu þegar hann er í raun að bíða eftir tryggingu fyrir því að allt fari vel.
Slíkar tryggingar eru vandfundnar.
Það fylgja alltaf einhverjir ábyrgðarskilmálar heimilistækjum. Þeir virðast helst vera skrifaðir til að útskýra hvers vegna ábyrgðin nái einmitt ekki yfir bilunina sem kom upp hjá manni.
Lífinu fylgja ekki einu sinni slíkir skilmálar.
Fyrir mörgum árum var einn yfirmaður minn að gagnrýna mig fyrir eitthvað sem ég hafði gert en sjálfur var hann ekki sérlega athafnasamur.
Ég sagði við hann að menn sem færu aldrei yfir götu yrðu aldrei fyrir bíl.
Hugsunin var einföld. Færi ég hundrað sinnum yfir götuna gæti ég kannski orðið fyrir bíl í eitt skipti en ég hefði þá alla vega komist yfir í hin níutíu og níu skiptin. Hann myndir eyða ævi sinni öruggur á gangstéttinni, gagnrýnandi í allar áttir án þess að hafa sjálfur farið eitt eða neitt.
Það er auðvelt að hafa aldrei mistekist ef maður hefur aldrei reynt neitt.
Það gerir þó ekki allar ákvarðanir mínar réttar en einstök mistök verður líka að skoða í samhengi við það sem maður hefur lagt í og komið í verk.
Við metum stöðuna eftir bestu getu og tökum svo skrefið, þótt við vitum ekki allt.
Það þarf ekki að vera fífldirfska.
Þannig hefst flest sem er einhvers virði að gera.
Lífið eftir fimmtugt er engin biðstofa
Það er furðulífseig hugmynd að eftir fimmtugt eigi lífið smám saman að dragast saman.
Þá eigum við að vera búin að finna út hver við erum, hvað við gerum og hvar við eigum heima. Tími stórra tilrauna sé liðinn. Við megum halda við því sem við höfum þegar byggt upp, dytta að garðinum og reyna að slasa okkur ekki við að opna sultukrukku.
Nýtt upphaf sé helst ætlað yngra fólki.
Ég er ekki sammála því.
Yngri maður getur átt fleiri ár fram undan en sá eldri hefur oft annað sem er ekki síður verðmætt: reynslu, dómgreind og betri skilning á því hvað sé ekki þess virði að eltast við.
Við höfum gert nógu mörg mistök til að þekkja sum þeirra áður en við endurtökum þau.
Ekki öll, auðvitað. Það væri fullmikil bjartsýni að ætla að við værum búin með þann kvóta.
En við þekkjum betur styrkleika okkar og takmarkanir. Við höfum líka lært með hverjum sé gott að ráðast í verkefni — og hverjum sé best að sleppa.
Að byrja síðar er ekki það sama og að byrja of seint.
Sextíu og sjö ára hef ég engan áhuga á að lifa eins og allt sem máli skiptir í mínu lífi sé þegar afstaðið.
Það þýðir ekki að ég afneiti aldrinum.
Ég er bara ekki búinn að vera þótt ég sé orðinn eldri.
Það sem við látum ósagt
Lífið bíður ekki heldur þegar kemur að samskiptum okkar við annað fólk.
Við gerum ráð fyrir að síðar gefist tækifæri til að tala af hreinskilni, sættast eftir rifrildi, þakka fyrir okkur eða kveðja almennilega.
Stundum gefst það tækifæri.
Stundum ekki.
Við karlar erum sérstaklega lagnir við að fresta samtölum sem gætu orðið tilfinningalega flókin. Við teljum okkur trú um að hinn aðilinn viti nú örugglega hvað okkur finnst.
Kannski veit hann það.
Það getur samt verið gott að fá að heyra það.
Við þurfum ekki að snúa sérhverri vináttu í vikulegan umræðufund um sálarlífið. Karlar sýna oft væntumþykju með tryggð, húmor, hjálpsemi og því að vera til staðar. Það er mikils virði.
En stundum getur verið nauðsynlegt að segja eitthvað.
„Ég hafði rangt fyrir mér.“
„Ég þarf hjálp.“
„Ég hef saknað þín.“
„Ég er stoltur af þér.“
Þetta eru stuttar setningar. Það þarf hvorki að boða fund né útbúa glærur til að útskýra þetta.
Samt myndu sumir karlar frekar endurhlaða allan garðvegginn en segja eina þeirra.
Veggurinn verður kannski hinn glæsilegasti en það sem þurfti að segja verður enn ósagt.
Við þurfum ekki að vera alltaf þau sömu
Við hugsum gjarnan um það hver við erum eins og það sé endanlega ákveðið.
Ég er læknir. Faðir. Eiginmaður. Yfirmaður. Sá sem leysir vandamálin. Sá sem aðrir hringja í.
Þessi hlutverk skipta máli, en þau breytast með lífinu.
Börnin vaxa úr grasi. Starfsferillinn tekur nýja stefnu eða lýkur. Sambönd breytast. Foreldrar falla frá. Stofnanir eða fyrirtæki sem við áttum þátt í að byggja upp halda áfram án okkar — eða láta stundum eins og þetta hafi byggst af sjálfu sér og maður hvergi komið nærri.
Ef við höfum skilgreint okkur alfarið út frá einu hlutverki getur okkur fundist við sjálfir hverfa þegar þess er ekki lengur þörf.
En við erum meira en starfsheitið okkar.
Við megum taka okkur eitthvað annað fyrir hendur.
Við megum fá áhuga á nýjum hlutum, kynnast nýju fólki og hefja verk án þess að vita nákvæmlega hvernig því muni ljúka.
Við megum meira að segja koma fólki á óvart sem taldi sig vera búið að átta sig endanlega á okkur.
Kannski ekki síst því fólki.
Að byrja án þess að vita hvernig fer
Nordic Wolves er slíkt upphaf fyrir mig.
Ég hef ekki hugmynd um hvert það leiðir.
Kannski tengir það saman menn sem hefðu annars setið einir með hugsanir sínar og upplifun. Kannski fær það einhvern til að hugsa betur um sjálfan sig, hefja samtal, rifja upp gamalt áhugamál eða láta verða af einhverju sem hann hefur lengi frestað.
Kannski þróast það í einhverja átt sem mér hefði aldrei órað fyrir eða kannski verður ekki mikið meira úr þessu en það sem skrifin hafa þegar gefið mér sjálfum.
Það er líka bara allt í lagi.
Það hefur gildi í sjálfu sér að koma reynslu sinni í orð, endurskoða eigin niðurstöður og skapa eitthvað sem skiptir mann máli. Ég vona að pistlarnir skipti aðra máli en þeir verða ekki einskis virði þótt þeir reynist að lokum hafa haft mesta þýðingu fyrir mig sjálfan.
Þarna kallar Learning to Fly með Pink Floyd til mín.
Time minnir mig á tímann sem er liðinn. Learning to Fly minnir mig á tilfinninguna þegar maður leggur í eitthvað nýtt: löngunina, óvissuna og það að vilja eitthvað án þess að kunna það enn.
Reynslan hjálpar en hún leysir okkur ekki undan því að læra.
Eldri maður getur vitað heilmikið en samt verið byrjandi í einhverju sem skiptir hann miklu máli.
Óvissan þýðir ekki að eitthvað sé að verkefninu.
Hún fylgir því að skapa eitthvað nýtt.
Við viljum gjarnan vita hvernig fer áður en við leyfum okkur að byrja en ef framhaldið er þegar ákveðið erum við varla að skapa neitt. Við erum þá bara að fara eftir leiðbeiningum.
Verkefni breytast þegar aðrir koma að þeim. Nýjar spurningar vakna. Einn pistill kallar á annan. Lesandi kemur auga á eitthvað sem höfundurinn sá ekki. Reynsla fær okkur til að endurskoða það sem við töldum okkur viss um.
Fyrstu hugmyndirnar þurfa ekki að ná utan um allt sem síðar gæti orðið.
Það verður að vera pláss fyrir fleiri.
Annars komast þeir aldrei að.
Við þurfum ekki að ljúka öllu
Það felst líka ákveðið frelsi í að sætta sig við að við munum ekki ljúka öllu.
Sum verkefni verða stærri en svo að við klárum þau sjálf. Sumum spurningum verður ósvarað. Það verða staðir sem við heimsækjum aldrei, bækur sem við skrifum ekki og ágreiningur sem við leysum ekki.
Það þýðir ekki að lífið hafi mistekist.
Líf manns verður ekki metið eftir því hvort búið sé að haka við allt á listanum.
Ef einhvern tíma kemur að því að ég hafi ekkert eftir til að velta fyrir mér, efast um, byggja upp eða skrifa um verður það ekki merki um að ég hafi öðlast fullkomna visku.
Þá væri líklega réttara að athuga hvort ég sé enn með púls.
Það má alltaf vera eitthvað ógert. Ekki óuppgerð mál sem halda okkur föstum í fortíðinni, heldur eitthvað sem okkur langar að vakna til á morgun.
Ný ferð.
Nýr pistill.
Ný hugmynd sem er enn svolítið galin.
Dagatalið heldur sínu striki
Dagsetningar skipta máli.
Þær hjálpa okkur að láta verða af því sem við höfum í hyggju. „Einhvern tíma“ finnst hvergi á dagatalinu. Þriðjudagsmorgunn er öllu skýrari.
Skilafrestur getur verið hvimleiður en hann neyðir okkur til að hætta að hugsa bara um hugmyndina og reyna loksins að koma henni í framkvæmd.
Þá kemur yfirleitt fljótt í ljós hvað er að henni og það er bara allt í lagi.
Þegar eitthvað er orðið til er hægt að bæta það. Verkefni sem kemst aldrei út úr hausnum á okkur getur verið gallalaust þar. Það gagnast samt öðrum lítið — og síst okkur sjálfum ef við gerum aldrei neitt úr því.
Hálfnað verk þá hafið er, segir máltækið.
Þeir sem hafa gert upp hús gætu þó haft efasemdir um þessa staðhæfingu en hugsunin er góð. Þegar við erum byrjuð höfum við loksins eitthvað í höndunum. Við sjáum hvað vantar, getum lagað það sem fór úrskeiðis og tekið næsta skref.
Við eigum ekki að bíða þar til allar efasemdir eru horfnar.
Við eigum að byrja þegar okkur finnst hugmyndin nógu mikilvæg til að halda áfram þrátt fyrir þær.
Hugrekki þarf ekki alltaf að bera mikið á sér. Stundum felst það í að senda skilaboðin, bóka ferðina, opna skjalið eða ýta á hnappinn „Birta“.
Það er ekki einu sinni víst að hjartað slái hraðar.
Stundum spyr tölvan bara: „Ertu viss?“
Nei. Við erum ekki alveg viss.
Ýtum samt.
Þetta eru ekki lokaorð
Það er freistandi að láta síðasta pistil í þessari 27 pistla röð hljóma eins og kveðju en þetta er svo sannarlega engin kveðja.
Það eru fleiri viðfangsefni, fleiri sögur og sennilega fleiri skoðanir sem eiga eftir að koma mér í vandræði.
Tilgangurinn með þessum fyrstu pistlum er ekki að segja allt sem mér liggur á hjarta og tilkynna svo að nú sé ekkert eftir.
Þeir eru byrjun.
Ef einhver finnur í þeim eitthvað sem gagnast honum getur samtalið haldið áfram. Ef menn eru ósammála getur það líka verið gagnlegt. Það er þægilegt að vera sammála, en þaðan koma sjaldnast áhugaverðustu umræðurnar.
Ég veit ekki hvað pistlarnir verða margir eða hvernig Nordic Wolves á eftir að þróast.
Ég veit hins vegar að hefði ég beðið eftir fullkominni vissu hefði ekkert af þessu orðið til.
Meðan við erum hér
Lífið bíður ekki eftir neinum.
Þessa setningu má tulka sem hótun en eg heyri frekar hvatningu í henni.
Notum tímann sem við eigum.
Byrjum á einhverju.
Tökum aftur upp þráðinn.
Hringjum í einhvern.
Förum eitthvert.
Gerum áætlanir en látum ekki það sem eftir er ævinnar fara í að endurbæta þær án þess að hefjast nokkurn tíma handa.
Við þurfum ekki að lifa á harðahlaupum eða láta eins og hver dagur sé síðasta tækifærið til að vinna eitthvert stórvirki. Flestir dagar verða áfram ósköp venjulegir. Við drekkum kaffi, týnum lyklunum, svörum skilaboðum og veltum fyrir okkur til hvers í ósköpunum við gengum inn í þetta herbergi.
Þetta hversdagslíf er ekki eitthvað sem þarf að komast frá áður en alvörulífið getur hafist.
Þetta er lífið.
Við þurfum ekki að flýja það. Við þurfum að taka eftir því og taka þátt í því.
Ekkert okkar veit hvað við eigum langan tíma eftir.
En meðan við erum hér getum við enn haft áhrif á framhaldið.
Við getum enn tekið næsta skref.