Hvernig varð ég svona stirður?
Hefurðu einhvern tíma fylgst með litlu barni taka eitthvað upp af gólfinu?
Það beygir sig ekki varlega fram, heldur sér í borðið og gefur frá sér þetta litla hljóð sem mörg okkar virðast byrja að gefa frá sér einhvers staðar eftir fimmtugt.
Það sest einfaldlega á hækjur sér.
Og situr þar.
Börn geta leikið sér á gólfinu, setið á hækjum sér, skriðið um, staðið aftur upp og endurtekið þetta allt saman án þess að leiða hugann að því. Líkaminn hreyfist enn eins og mannslíkaminn var líklega gerður til að hreyfast.
Dýr gera svipað.
Ef dýr meiðir sig á einum fætinum hlífir það honum gjarnan um stund (lyftir honum jafnvel upp við göngu) og fer síðan að nota hann aftur þegar það treystir sér til. Við mannfólkið erum þróaðri. Við höldum áfram að stíga í auma fótinn á nokkurra mínútna fresti til að athuga hvort hann sé ennþá aumur.
Yfirleitt er hann það.
Hvað gerist eiginlega á milli barnsins sem situr alsælt á hækjum sér á gólfinu og sextíu og fimm ára mannsins sem uppgötvar allt í einu að það að fara í sokka er orðið að liðleikaprófi?
Ýmislegt.
Fyrst uppgötvum við stólinn
Fyrstu æviárin eru börn nánast stöðugt á hreyfingu og hreyfa sig í allar mögulegar áttir.
Síðan sendum við þau í skóla.
Og kennum þeim að sitja.
Þau sitja í kennslustofunni. Þau sitja þegar þau borða. Þau sitja við heimanám. Nú til dags sitja þau fyrir framan tölvur, spjaldtölvur og síma. Á Vesturlöndum halda flest okkar síðan áfram í einhvers konar framhaldsnám sem þýðir yfirleitt enn meiri setu.
Að lokum finnum við okkur vinnu þar sem mörg okkar halda áfram að sitja næstu þrjátíu eða fjörutíu árin.
Oft stóran hluta dagsins í einhvers konar rækjustöðu – bakið bogið, höfuðið fram, axlirnar komnar í átt að eyrunum og hendurnar einhvers staðar fyrir framan okkur.
Dag eftir dag.
Ár eftir ár.
Það væri eiginlega merkilegra ef líkaminn yrði ekki stífur.
Hann aðlagast.
Það athyglisverða er að þetta virðist þó ekki vera óhjákvæmilegt.
Ég hef verið töluvert í Taílandi, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem ýmis þægindi sem við teljum sjálfsögð á Vesturlöndum hafa ekki alltaf verið jafn algeng. Þar sér maður enn gamalt fólk sitja þægilega á hækjum sér við að borða, spjalla eða einfaldlega bíða.
Prófaðu að setjast með því.
Eftir nokkrar mínútur eru margir Vesturlandabúar á sama aldri farnir að leita annaðhvort að stól eða bæklunarlækni.
Liðleiki var ekki eitthvað sem maður velti sér mikið upp úr.
Börn og unglingar hreyfa sig þó nokkuð. Þau hlaupa, leika sér og stunda íþróttir.
Þegar ég var ungur voru liðleikaæfingar varla talin nein vísindi.
Við gerðum kannski einhverjar teygjur fyrir eða eftir æfingu, en enginn virtist velta því mikið fyrir sér hvaða vefi við værum að teygja, hvers vegna við værum að teygja þá eða hvort það sem við vorum að gera meikaði yfirhöfuð einhvern sens.
Svo koma unglingsárin og líkaminn breytist ótrúlega hratt.
Unglingar kvarta gjarnan undan ýmiss konar álagseinkennum og verkjum sem áður fyrr voru oft settir í þessa ágætu ruslakistu læknisfræðinnar sem kölluð var „vaxtarverkir“, sérstaklega þegar læknarnir gátu ekki sett niður neina sérstaka sjúkdómsgreiningu og stóðu á gati.
Það var samt reyndar ekki algjört bull.
Á hröðu vaxtarskeiði breytast bein, vöðvar, sinar og aðrir mjúkvefir ekki endilega allt á nákvæmlega sama hraða. Beinin stækka oft hraðar en umlikjani mjúkvefir ná að fylgja eftir þannig að þeir eru í sífellri spennu. Þegar við bætum síðan mikilli íþróttaiðkun ofan á líkama sem er að breytast hratt þá er það kannski ekkert sérstaklega skrýtið að eitthvað fari að segja til sín.
Ég fékk mína eigin útgáfu af þessu.
Á unglingsárunum var ég mjög góður í skólaleikfimi og gat gert höfuðstökk óaðfinnanlega. Ég var nokkuð stoltur af því að geta gert þetta með tiltölulega beint bak.
Það reyndist ekki endilega kostur.
Nokkrir hryggjarliðir hjá mér urðu fyrir breytingum sem kenndar eru við svokallaðan Scheuermann-sjúkdóm en þetta er nokkuð algengt hjá táningsstrákum.
Sumir hryggjarbolirnir urðu fleyglaga en það getur skert getu hryggsins til að sveigjast aftur á bak.
Áratugum síðar eru sumir þessara liðbola minna orðnir nánast samgrónir að framan vegna kalkaðra langbanda fyrir framan hryggsúlua og nokkur bil í hryggnum hjá mér hreyfast varla.
Þannig að þegar ég kvarta yfir því í dag að vera stífur get ég ekki kennt aldrinum einum og sér um þetta allt.
´Í mínu tilfelli byrjaði þetta snemma.
Svo tekur alvaran við
Hjá mörgum hverfur skipulögð íþróttaiðkun smám saman úr lífinu.
Námið verður að vinnu. Vinnan verður að starfsframa. Svo koma maki, börn, hús, skuldir og allt hitt sem virðist fylgja því að verða fullorðinn.
Sumir halda áfram að vinna líkamlega vinnu og nota líkamann alla daga. Það hefur sína kosti, þótt áratugir af erfiðri líkamlegri vinnu geti líka tekið sinn toll. Slitgigt og ofálag gera ekki mannamun.
Aðrir eyða stórum hluta starfsævinnar sitjandi.
Og það er orðið ótrúlega auðvelt að sitja.
Við sitjum í vinnunni, í bílnum, í sófanum, við matarborðið og fyrir framan skjái. Klukkustundir líða með mjaðmir og hné beygð, axlirnar fram og hrygginn meira eða minna í sömu stöðu.
Rækjustaðan er orðin fullorðin.
Mannslíkaminn er ótrúlega góður í að aðlagast því sem við biðjum hann um.
Því miður aðlagast hann líka því sem við hættum að biðja hann um.
Aldurinn á samt einhverja sök
Við getum ekki kennt stólnum um allt.
Einhvers staðar eftir þrítugt fer vöðvamassi og vöðvastyrkur hægt og rólega að minnka ef við gerum ekkert til að vinna gegn því. Í fyrstu gerist þetta hægt en þróunin verður gjarnan hraðari með hækkandi aldri, sérstaklega eftir fimmtugt.
Beinin breytast líka svo og sinar, liðbönd og annar bandvefur. Endurheimtin verður hægari. Hormónabreytingar eiga sinn þátt. Gömul meiðsli sem við vorum nánast búin að gleyma geta allt í einu minnt okkur á að þau hafa afbragðsgott minni.
Svo fer styrkurinn að minnka.
Jafnvægið fylgir oft á eftir.
Og eitthvað athyglisvert gerist líka í höfðinu á okkur.
Við verðum varkárari.
Á mínum yngri árum seig ég endurtekið 90 fet niður úr björgunarþyrlu í skip og fjöll án þess að velta því sérstaklega mikið fyrir mér.
Í dag get ég stundum litið niður af húsþaki og hugsað:
Nei.
Alls ekki.
Sumt af þessu er viska en einnig vaxandi lofthræðsla.
Sumt er líklega jafnvægið.
Það er ágætt að rugla þessu tvennu ekki saman.
Þegar styrkur, hreyfigeta og jafnvægi minnka treystum við líkamanum síður. Þegar við treystum honum síður notum við hann minna. Þegar við notum hann minna versnar ástandið enn frekar.
Það er getur orðið slæmur vítahringur.
Og svo er það fascian
Stærstan hluta starfsævinnar hugsaði ég fyrst og fremst um bein, liði, vöðva, sinar og liðbönd.
Ég er bæklunarlæknir og þannig vorum við þjálfaðir til að hugsa.
Það er hins vegar til annar vefur sem liggur um allan líkamann og hefur fengið miklu minni athygli en hann á skilið: fascian.
Fascia er bandvefur sem umlykur og tengir vöðva, liggur víða um líkamann, en umlykur og styður einnig fjölmarga aðra vefi og líffæri.
Lengi vel var hún nánast meðhöndluð eins og umbúðir – eitthvað sem maður skar í gegnum á leiðinni að áhugaverðu líffærafræðinni fyrir innan.
Nú vitum við að málið er talsvert flóknara.
Fascia er ríkulega ítauguð, líffræðilega virk og tekur þátt í hreyfingu, kraftflutningi og skynjun. Breytingar í fasciukerfinu geta átt þátt í þeirri stífni og óþægindum sem mörg okkar finna meira fyrir með aldrinum.
Mér finnst þetta sérstaklega áhugavert vegna þess að fascia fékk furðulega litla athygli í minni eigin læknis- og skurðlæknisþjálfun.
Það eru raunar ekki mörg ár síðan ég fór sjálfur að velta henni almennilega fyrir mér.
Því meira sem ég læri, því meira grunar mig að við höfum vanmetið hana.
Fascian á því skilið sinn eigin pistil.
Af hverju erum við þá svona stíf?
Það er vegna þess að við höfum eytt áratugum í að þjálfa okkur í að verða stíf.
Við hættum að sitja á hækjum okkar.
Við settumst í stól.
Við endurtókum sömu hreyfingarnar og hættum að nota aðrar.
Við urðum fyrir meiðslum.
Við misstum vöðva.
Bandvefirnir breyttust.
Beinin breyttust.
Jafnvægið breyttist.
Hormónin breyttust.
Og að lokum fórum við að hreyfa okkur minna vegna þess að það var orðið erfiðara að hreyfa sig.
Ekkert af þessu þýðir að sextugur, sjötugur eða áttræður maður eigi að geta hreyft sig eins og barnið á gólfinu.
Það er heldur ekki að hægt sé að teygja hvern stífan lið aftur til æskuáranna. Fleyglaga hryggjarbolirnir mínir eru að minnsta kosti ekkert að fara neitt.
Það er þó gríðarlegur munur á því að sætta sig við þær breytingar sem raunverulega fylgja aldrinum og því að gefa að óþörfu eftir hreyfigetu sem við gætum enn haft.
Kannski getur barnið á gólfinu kennt okkur eitthvað eftir allt saman.
Ekki að við þurfum að eyða kvöldunum sitjandi á hækjum okkar, þótt ég viðurkenni að ef þú getur enn setið þannig þægilega þá er ég örlítið öfundsjúkur.
Heldur að hreyfigeta er eitthvað sem við ættum að halda í eins lengi og við mögulega getum.
Líkaminn er nefnilegar ótrúlega góður í að aðlagast því sem við biðjum hann um.
Og því miður líka því sem við hættum að biðja hann um.