Hvenær hætti maður að eiga vini og fór að eiga kunningja?

Ég hef alltaf verið fremur einrænn.

Og nokkuð nógur sjálfum mér, sem helgast sennilega að einhverju leyti af því að ég var einbirni.

En jafnvel einbirni þarf vini.

Þegar ég var á barnsaldri var faðir minn sjálfstætt starfandi lögfræðingur og móðir mín heimavinnandi, bæði vegna veikinda en einnig vegna þess að það var mun algengara á þeim tíma. Það var alls ekkert sjálfgefið að barn kæmist á leikskóla ef annað foreldrið var heima.

Ég fékk þó undanþágu að lokum en þá var ég greinilega orðinn svolítið skrýtinn og farinn að tala við ímyndaða vini.

Einhverjum hefur sennilega dottið í hug að rétt væri að prófa alvöru börn.

Sem betur fer virkaði það.

Ég eignaðist vini í nágrenninu og við hófum skólagöngu saman en þegar ég var níu ára flutti ég í annað bæjarfélag þar sem ég bjó fram að fullorðinsaldri.

Á skólaárunum átti ég fullt af vinum. Ég var opinn og glaður og auk þess góður í íþróttum. Bekkjarfélagar manns á þessum árum voru nánast eins og systkini manns. Við stunduðum alls konar íþróttir, fórum á skauta, í sund og eyddum stórum hluta frítímans saman í ýmsum leikjum sem born nútímans þekkja ekki lengur.  Skólatöskunni hent bak við annað markið á skólalóðinni strax að loknum skóla, spilaður fótbolti út í það óendanlega og ef rigndi um stund þá var hægt að klifra upp kletta þar sem bókasafnið var og lesa þar ýmislegt þar til stytti upp á ný.

Engir samfélagsmiðlar voru til.

Sjónvarpsefnið var líka afskaplega takmarkað.

Á Íslandi var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og árum saman ekkert sjónvarp allan júlímánuð.

Prófið að útskýra þetta fyrir fimmtán ára unglingi í dag.

Á sumrin fóru krakkar í sveit, á íþróttanámskeið, í skólagarða eða einfaldlega út og fundu önnur börn.

Það þurfti ekkert sérstakt skipulag til að eignast vini.

Vináttan bara varð til.

Svo tók lífið við og dreifði okkur

Eftir grunnskóla fór ég í framhaldsskóla í Reykjavík, ólíkt flestöllum gömlu vinum mínum.

Fyrstu tvö árin þar var ég með einum hópi og síðan önnur tvö ár með þeim sem héldu áfram með stefnu á háskólanám. Ég kynntist fullt af fólki en flest þessi samskipti tilheyrðu skólanum. Að skóladegi loknum fór hver til síns heima og við bekkjarfélagarnir bjuggum ekki einu sinni í sama bæjarfélagi.

Vináttan við gömlu æskufélagana hélt áfram um tíma, meðal annars í gegnum íþróttirnar.

Svo hætti ég reglubundinni keppnisíþróttaiðkun, fór erlendis í tæp tvö ár að kanna heiminn, kom aftur heim og eyddi síðan sex árum í læknisfræðinámi.

Aftur kynntist ég fullt af fólki.

En það að þekkja marga er ekki það sama og að eiga marga vini.

Háskólaárunum fylgdi auðvitað skemmtanalíf og þar urðu alls konar manneskjur á vegi manns. Sumir urðu vinir um tíma. Flestir urðu kunningjar og hurfu síðan hver í sína áttina.

Svo kom vinnan.

Hjónaband.

Börn.

Starfsframi.

Og allt í einu líða árin furðulega hratt.

Maður vinnur með fólki alla daga. Þekkir venjur þess, skoðanir, hvernig kaffi það drekkur og sennilega miklu meira um suma vinnufélaga en maður kærir sig um að vita.

Maður kallar þá jafnvel vini.

Svo skiptir annar um vinnu.

Og einhvern veginn uppgötvar maður að maður þekkti kannski aldrei maka þeirra, börnin eða vissi mikið um líf þeirra utan vinnunnar.

Vináttan tilheyrði að einhverju leyti húsinu.

Þegar húsið hvarf, hvarf vináttan líka.

Kannski er ég ekki besta dæmið

Þetta er mín saga og ég er sennilega frábrugðinn mörgum þegar kemur að vináttu.

Ég hef oft verið nokkuð nógur sjálfum mér.

Aðrir hafa verið miklu duglegri en ég að rækta vináttu frá æskuárum, háskóla eða vinnu. Sumir eru líka virkir í félagasamtökum, klúbbum og ýmiss konar félagsstarfi.

Ég virðist því miður hafa fæðst með vægt ofnæmi fyrir skipulögðu félagsstarfi eða jafnvel hálfgerður félagsskítur.

Bækur og tónlist hafa oft verið mér alveg nægur félagsskapur.

Það þýðir samt ekki að ég eigi erfitt með að eignast vini.

Þvert á móti.

Sem einbirni lærir maður snemma að ef maður vill leika við önnur börn þarf maður að finna þau.

Ég man að ég var nánast kominn með einhvers konar radar upp úr hausnum þegar ég heyrði í krökkum að leik einhvers staðar í nágrenninu.

Einbirni getur ekki bara snúið sér við og farið að pirra systkini sitt.

Börn sem eiga systkini hafa alltaf einhvern tiltækan heima, jafnvel þótt þau þoli ekki hvort annað.

Við hin þurftum að fara á veiðar.

Og ég varð bara nokkuð góður í því.

Í gegnum lífið hef ég oft hitt fólk sem mér hefur strax líkað vel við og hugsað: Þessa manneskju langar mig að eiga að vini.

Ekki alveg ósvipað því að verða skotinn í stelpu á yngri árum, þótt yfirleitt fylgi því færri vandamál.

Yfirleitt.

Vinir eru ekki tryggðir til lífstíðar

Það skrýtna við vináttu er hversu varanleg hún getur virst á meðan á henni stendur.

Og hversu fljótt hún getur stundum horfið.

Fólk flytur.

Lífið breytist.

Fjölskyldan tekur við.

Starfsferillinn liggur í ólíkar áttir.

Stundum fjarar vináttan einfaldlega út án þess að neitt sérstakt hafi gerst.

Stundum rofnar hún.

Og einstaka sinnum gerist eitthvað milli tveggja einstaklinga sem gerir það að verkum að ekki verður aftur snúið.

Það hefur verið sagt að auðvelt sé að eignast nýjan vin en erfitt að eignast gamlan vin.

Því eldri sem ég verð, því meiri sannleika sé ég í þessu.

Ný vinátta getur orðið náin og mikilvæg en maður getur ekki búið til fjörutíu ára sameiginlega sögu.

Maður getur ekki endurskapað það að hafa verið þrettán ára saman.

Maður getur ekki búið til vitleysuna sem maður gerði sautján ára, fólkið sem báðir þekktu, staðina sem eru ekki lengur til eða brandarana sem þarf ekkert að útskýra vegna þess að báðir voru á staðnum.

Tíminn býr til eitthvað sem áhugi einn og sér getur ekki komið í staðinn fyrir.

Og svo lýkur vinnunni

Nú þegar starfsævin nálgast endalokin tek ég eftir því að enn eitt lagið er að hverfa.

Fyrrverandi samstarfsfélagar á ýmsum vinnustöðum hafa smám saman farið hver sína leið.

Það er fullkomlega eðlilegt.

Stór hluti þess sem tengdi okkur saman var vinnan.

Samt sit ég stundum og hugsa mest til æskuvinanna sem ég hef ekki hitt flesta í tugi ára.

Af og til eru haldin bekkjarmót. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið sérstaklega duglegur að mæta á þau.

Ég á nokkra mismunandi hópa af gömlum bekkjarfélögum enda búinn að ganga í marga skóla.

Það getur verið gaman að hitta allt þetta fólk aftur og spyrja hinna hefðbundnu spurninga;

Hvað varð um þig?

Hvar býrðu?

Ertu í hjónabandi?

Hvað áttu mörg börn?

Hvernig hefurðu það?

Allt saman ágætt.

En eftir smástund eru ákveðin takmörk fyrir því hversu oft hægt er að segja:

„Manstu þegar...“

Sá hópur sem mig langar í raun og veru mest að setjast aftur niður með eru krakkarinir sem ég ólst upp með.

Ekki endilega vegna þess að við eigum mikið sameiginlegt í dag.

Ég veit ekki einu sinni hvort við gerum það.

En einu sinni gerðum við það.

Og það skiptir einhverju máli.

Hverjir eru þá vinirnir í dag?

Fjölskyldan er annars konar samband.

Foreldrar mínir, sem létust fyrir nokkrum árum, voru meðal minna bestu vina.

Í dag er konan mín minn nánasti félagi og sömuleiðis yngsti sonur minn, sem er að verða fimmtán ára og er enn, að vissu marki, furðu líkur mér.

Svo er það hundurinn minn.

Hann fylgir mér út um allt og hefur hingað til reynst afskaplega traustur eins og hundum er einum lagið.  Hann er líka sá eini sem hingað til – og líklega um alla framtíð – virðist halda að ég sé Guð.  Einhver sagði eitt sinn: “Því betur sem ég kynnist fólki, því vænna þykir mér um hundinn minn.  Þessi setning hefur verið eignuð ýmsum, en hún stendur fyllilega fyrir sínu.

Börnin eru síðan sérstakur kapítuli. Okkur finnst sjálfsagt að sjá eitthvað af sjálfum okkur í þeim, en þau hafa sinn eigin persónuleika og sitt eigið líf. Það er ekkert gefið að við höfum alltaf sömu áhugamál eða sjáum heiminn með sömu augum.

Böndin eru annars eðlis.

Þau byggjast ekki á því hvort við hefðum valið hvort annað í partíi.

Ég þekki enn mjög margt fólk.

Ég á fullt af kunningjum.

En ég á ekki lengur marga sem ég myndi hiklaust kalla sanna vini.

Og merkilegt nokk er ég ekkert sérstaklega óánægður með það.

Kannski vegna þess að ég hef alltaf verið svolítið einrænn.

Kannski vegna þess að ég hef lært að vinátta er ekki keppni í fjölda.

Og kannski vegna þess að þegar allt annað er tekið burt þá er ein manneskja sem maður þarf að eyða hverjum einasta degi ævinnar með.

Maður sjálfur.

Það er eins gott að læra að vera þokkalega góður vinur þeirrar manneskju.

Hvað hitt varðar þá kemur það bara í ljós.

Kannski eignast ég alveg nýjan vinahóp þegar og ef ég enda á elliheimili.

Þá ætti ég að minnsta kosti að hafa nægan tíma og kannski líka gullfiskaminni, þannig að allir sem ég hitti daglega virðast vera einhver sem ég er að hitta í fyrsta sinn.

Og væntanlega engin vinna að þvælast fyrir.

 

Previous
Previous

Hvernig varð ég svona stirður?

Next
Next

Þjónustuskoðun á kallinum