Hvað gerist í raun eftir fimmtugt?

Það að verða fimmtugur er svolítið merkilegt fyrirbæri.  Með auknum lífslíkum þykir það ekki hár aldur í dag en það er af sem áður var.

Ég man þegar foreldrar mínir urðu fimmtug. Einhvern veginn fannst mér þá eins og þau ættu kannski bara örfá ár eftir.

Í dag er þetta allt öðruvísi. Margir eiga þrjátíu eða jafnvel fjörutíu ár eftir þegar þeir verða fimmtugir. Samt virðast furðu fáir staldra við og hugsa um hvernig þeir ætli eiginlega að lifa öll þessi ár.

Fólk setur sér alls konar markmið og viðmið í kringum fimmtugt. Það er reyndar dálítið skemmtilegt að fylgjast með því hverjir mæta í ræktina.

Stærsti hópurinn er ungt fólk í leit að maka.

Svo kemur annar nokkuð stór hópur sem stendur í skilnaði og er að undirbúa sig fyrir að komast aftur á markaðinn.

Síðan eru alltaf nokkrir sem ákveða allt í einu að koma sér í form vegna þess að þeir vilja líta vel út á fimmtugsafmælinu.

En hvað gerist svo eftir fimmtugt?

Lífið tekur ýmsum breytingum.

Hjá flestum okkar er barnauppeldið að mestu að baki og þau börn sem enn búa heima eru orðin nógu sjálfstæð til að lifa sínu eigin lífi.

Starfið hefur líka oft breyst. Hjá sumum hefur ábyrgðin aukist en hjá öðrum hefur hún minnkað. Sumir halda áfram í sama endurtekningarsama starfinu ár eftir ár og þeir sem missa vinnuna uppgötva að sífellt erfiðara verður að finna nýja vegna þess að kennitalan er farin að vinna gegn þeim..

Á sama tíma eru foreldrar okkar orðnir aldraðir og þurfa því einnig aukið eftirlit og umönnun.

Vinahópurinn hefur líka breyst.

Æskuvinir hurfu þegar lífið leiddi okkur í ólíkar áttir. Aðrir vinir komu í gegnum vinnuna, sem sjálf kann að hafa breyst í gegnum árin. Sumir fluttu í burtu, aðrir veiktust og enn aðrir féllu frá.

Sögulega séð hafa karlmenn líklega haft færri tækifæri til að viðhalda nánum vináttusamböndum.

Flestir okkar sjá ekkert athugavert við að eiginkonur okkar haldi nánu sambandi við vinkonur sínar. Gefur okkur jafnvel tækifæri á að horfa á boltann á meðann.  Stingum við hins vegar upp á því að hitta nokkra gamla vini, hvað þá einn sem stendur í skilnaði, virðast sumir strax gera ráð fyrir að áfengi hljóti að koma við sögu.

Sumir karlmenn skilja og reyna síðan að snúa klukkunni til baka í þeirri von að endurheimta einhvern hluta fyrra lífs.

Stundum er gantast með það að karlmenn skilji vegna þess að þeir hafi fundið aðra konu, en konur skilji vegna þess að þær hafi fundið sjálfar sig.

Sjálfur held ég að margir karlmenn á þessum aldri séu einfaldlega líka að reyna að finna sjálfa sig.

Þeir eru ekki endilega að reyna að verða yngri.

Þeir eru að reyna að verða betri.

Heilsufarsvandamál fara líka að gera vart við sig.

Það tekur lengri tíma að jafna sig eftir meiðsli og styrkurinn minnkar smám saman. Stundum koma hormón þar við sögu. Karlmenn ganga líka í gegnum eins konar hormónabreytingar á miðjum aldri, þótt furðulítið sé rætt um það.

Lífsstílstengdir sjúkdómar fara að láta á sér kræla, en samt gefa margir karlmenn þessum breytingum furðulítinn gaum.

Ég hef oft spurt karlkyns sjúklinga hvaða lyf þeir taki. Sumir benda einfaldlega á konuna sína og segja mér að spyrja hana — jafnvel einnig þegar ég spyr hvers vegna þeir séu yfirleitt að taka þessi lyf.

Kannski segir það okkur meira en margar vísindarannsóknir gætu nokkurn tíma gert.

Þolið minnkar líka.

Menn sem áður gátu skemmt sér þrjár nætur í röð og voru orðnir góðir eftir einn dag þurfa nú þrjá daga til að jafna sig eftir eitt gott kvöld.

Svona er þetta bara.

Þegar menn eru komnir yfir fimmtugt hafa þeir yfirleitt safnað að sér mikilli lífsreynslu og standa oft betur fjárhagslega en áður.

Samt talar samfélagið furðulítið til karla á þessu æviskeiði.

Það þýðir ekki að þeir séu hættir að velta tilganginum fyrir sér.

Eftir því sem árin líða fara menn eðlilega að óttast að missa heilsuna og þar með sjálfstæðið. Sjálfstæði snýst þó ekki bara um heilsu. Það getur líka snúist um fjárhagslegt öryggi.

Margir missa hluta þess tilgangs sem fólst í því að sjá fyrir fjölskyldunni og njóta virðingar fyrir störf sín.

Sumir missa makann sem hefur verið hinn helmingur lífs þeirra.

Aðrir fara að upplifa að þeir séu að missa virðingu þeirra sem í kringum þá eru og kannski enn verra — þeir óttast að verða öðrum byrði.

Af hverju eru svona margir karlmenn einir með þessar hugsanir?

Líklega vegna þess að við erum ekki vanir að tala um þær.

Við erum vanir því að láta verkin sýna hverjir við erum og margir okkar líta enn svo á að það sé veikleikamerki að opna sig fyrir öðrum körlum um það sem býr undir yfirborðinu.

Stundum líður mér eins og ég sitji í herbergi fullu af eldri karlmönnum þar sem allir segjast hafa það bara fínt, á meðan hver og einn situr fastur inni í eigin höfði og spyr nákvæmlega sömu spurninganna.

Sömu áhyggjurnar.

Sama leitin að tilgangi.

Auðvitað halda þeir áfram að hitta vini sína, en þeir tala sjaldan um það sem mestu máli skiptir.

Konur hafa almennt verið betri í að vinna úr vandamálum sínum með því að tala um þau, á meðan við karlmenn höfum oft talið nóg að bíta á jaxlinn og halda áfram.

Kannski dugði það stundum.

En ekki alltaf.

Eftir því sem árin líða þyngjast líka margir karlmenn og prófa hvert mataræðið á fætur öðru, yfirleitt án mikils árangurs til lengri tíma.

Þeir sjá sig ekki fyrir sér í hefðbundinni líkamsræktarstöð.

Kannski fara þeir í sund, en þá frekar til að sitja í heita pottinum en til að synda.

Sumir skammast sín jafnvel fyrir að prófa nýja tegund hreyfingar vegna þess að þeim finnst lífið hafa hlaupið frá sér og að það sé einfaldlega orðið of seint að byrja.

Þeir fara að veiða eða spila golf.

Hvort tveggja felur í sér notalega göngutúra og góðan félagsskap, gjarnan styrktan með nokkrum drykkjum.

En það eitt og sér nægir ekki til að viðhalda beinþéttni og vöðvamassa.

Ég held að stærsta áskorunin eftir fimmtugt sé ekki að verða yngri.

Hún er að verða forvitnari.

Að átta sig á því að enn gæti verið ótrúlega áhugavert líf fram undan.

Að hafa kjark til að prófa nýja hluti.

Að eldast án þess að verða gamall.

Vegna þess að annars er raunveruleg hætta á því að við hættum að lifa löngu áður en við deyjum.

Previous
Previous

Af hverju stofnaði ég Nordic Wolves?

Next
Next

Hvað geri ég sjálfur?