Af hverju stofnaði ég Nordic Wolves?
Öllum er kennt hvernig á að vaxa úr grasi, en engum er kennt hvernig á að eldast.
Það fylgir því ákveðin þögn að eldast. Ekki tómleg þögn eða óttablandin, heldur sú þögn sem verður til þegar maður fer að líta yfir lífshlaup sitt og reynslu.
Stóra spurningin sem fylgir er einfaldlega:
„Hvað nú?“
Við eldri karlmenn eigum ýmislegt sameiginlegt sem öðrum reynist erfitt að skilja eða er þeim jafnvel ákveðin hulin ráðgáta.
Lengi vel velti ég því fyrir mér hvað ég gæti lagt af mörkum, bæði fyrir sjálfan mig og aðra menn á mínu reki.
Ég hef stundað reglulega líkamsrækt alla ævi og á síðustu árum hef ég hugað meira að mataræðinu vegna þess að eins og flestir karlmenn hef ég bætt á mig nokkrum aukakílóum. Fyrsta hugmyndin mín var því að gera æfingamyndbönd fyrir eldri karlmenn og tengja þau við einhver ráð um mataræði.
Það hefði verið mér í lófa lagið eftir ævilangar eigin æfingar og læknisfræðilega menntun auk þess sem flest það fólk sem kennir eldra fólki æfingar er töluvert yngra og upplifir því ekki eigin líkama á sama hátt og við. Það eru þó þegar til víðsvegar ágætis æfingamyndbönd og kennsla svo og að við nánari umhugsun áttaði ég mig einnig á því að verkefnið var miklu stærra.
Eldri karlmenn þurfa ekki bara æfingaprógram. Þeir þurfa betri ástæður fyrir því hvers vegna þeir ættu yfirleitt að hreyfa sig reglulega og hugsa vel um sjálfa sig auk þess sem önnur mikilvæg atriði skipta einnig máli.
Vandamálið er að þeir eru ekki vanir að spyrja spurninga eða leita ráða.
Eldri karlmenn segja ekki alltaf mikið þegar kemur að þeim sjálfum, en það þýðir ekki að þeir hafi ekkert að segja og oftar en ekki dettur einfaldlega engum í hug að spyrja þá.
Við höfum reynt að aðlagast breyttu samfélagi sem eðlilega breytist með hverri kynslóð um leið og við höldum í þau gildi sem líf okkar hefur mótað. Stundum er okkur nánast lýst eins og hellisbúum og einhvers staðar á leiðinni birtist fyrirbæri sem kallað er “feðraveldið”, þótt margir okkar séum ekki alveg vissir um hvað við eigum að hafa gert við það.
Við höfum lítinn áhuga á sjálfshjálparklisjum, áhrifavöldum eða fólki sem telur sig hafa fundið eina rétta svarið.
Við höfum miklu meiri áhuga á heiðarleika, reynslu sem byggist bæði á vísindum og raunverulegu lífi, húmor, sögum, samveru með jafnöldrum okkar og einfaldlega því að vera innan um gott fólk.
Mér fannst skorta að rödd okkar heyrðist, ekki endilega gagnvart öllum öðrum, heldur fyrst og fremst gagnvart okkur sjálfum en ég fann í sjálfu sér engan viðeigandi vettvang fyrir það.
Auðvitað eru til alls konar samtök sem karlmenn tilheyra, en engin sem sérstaklega eru ætluð eldri karlmönnum á þann hátt sem ég vildi sjá það.
Þannig kveiknaði hugmyndin að Nordic Wolves.
Þetta er ekki hefðbundin heilsuvefsíða og ekki heldur trúarbrögð. Von mín er að þetta verði vettvangur fyrir þekkingu, umræður og ólíkar skoðanir meðal karla á þessu skeiði lífsins.
Þegar ég var að vinna mig í gegnum þessar hugsanir rifjaðist upp fyrir mér ritgerð Bertrands Russell, How to Grow Old, sem ég las fyrst á unglingsárunum. Hann hélt bæði líkamlegri og andlegri heilsu þar til hann lést — nánast fyrir slysni að mér fannst — úr inflúensu 97 ára gamall.
Kannski var fyrsta fræinu sáð þá, án þess að ég gerði mér nokkra grein fyrir því.
Nordic Wolves varð ekki til vegna þess að mig langaði að búa til enn eina heilsuvefsíðuna eða segja karlmönnum hvað þeir ættu að borða eða hvernig þeir ættu að æfa.
Nordic Wolves varð til vegna þess að mér fannst eitthvað vanta.
Rödd.
Rödd sem talar til okkar sem komnir erum yfir miðbik lífsins. Rödd sem viðurkennir að lífið hafi breyst en minnir okkur um leið á að það sé enn fullt af möguleikum.
Ég held ekki að eldri karlmenn þurfi fleiri reglur. Þeir hafa þurft að hlíta reglum allt sitt líf.
Ég held að þeir þurfi betri ástæður.
Ástæður til að hreyfa sig.
Ástæður til að hugsa um heilsuna.
Ástæður til að hlæja.
Ástæður til að halda áfram að vera forvitnir.
Kannski fyrst og fremst ástæður til að hlakka til morgundagsins.
Ég veit ekki hvert þessi vegferð leiðir mig, en ég veit að ég er lagður af stað. Það skiptir meira máli en flest annað því hálfnað verk þá hafið er.