Áhugamál eru ekki bara til að eyða tímanum

Þegar menn hætta að vinna er yfirleitt einhver tilbúinn með ráðlegginguna: „Nú verður þú að fara að finna þér eitthvert áhugamál.“

Það er stundum eins og starfslokin hafi skilið eftir sig svo margar lausar stundir að nauðsynlegt sé að koma þeim á einhvern hátt fyrir kattarnef.

Farðu að mála. Safnaðu frímerkjum. Smíðaðu skip í flösku. Gerðu bara eitthvað svo dagarnir verði ekki óbærilega langur.

Mér hefur aldrei líkað þetta tal um að eyða tímanum. Hann kemst ágætlega áfram án okkar aðstoðar. Við höfum takmarkað af honum og mér finnst nær að velta fyrir mér hvernig ég vil nota hann.

Það þýðir auðvitað ekki að hver klukkustund þurfi að skila afurð. Að lesa góða bók, spila afleitan golfhring eða sitja við vatn getur verið fyrirtaks leið til að verja deginum. Það þarf enga sérstaka afsökun fyrir því að njóta sín.

Gott áhugamál gefur okkur eitthvað til að hlakka til. Það getur vakið forvitni, veitt ánægju og leitt til nýrra kynna. Stundum kemur jafnvel í ljós að við getum enn lært eitthvað sem við héldum að við værum löngu orðin of gömul til að fást við.

Við erum meira en gamla starfsheitið

Stóran hluta ævinnar fá karlar sömu spurninguna: „Hvað gerirðu?“

Yfirleitt er verið að spyrja við hvað við vinnum. Við segjumst vera læknar, smiðir, bílstjórar, kennarar, bændur eða framkvæmdastjórar. Starfsheitið verður stutta svarið við því hver við erum.

Svo hættum við að vinna og allt í einu verður erfiðara að svara.

Við vitum alveg hvað við vorum. En hvað erum við núna?

Áhugamál getur hjálpað okkur að svara því. Það minnir okkur á að við höfum alltaf verið meira en eitt starfsheiti, þótt vinnan hafi lengi tekið stærsta plássið.

Rafvirki á eftirlaunum getur farið á kaf í ljósmyndun. Bókari getur uppgötvað trésmíðar. Maður sem vann inni alla starfsævina getur orðið sá sem þekkir hvern einasta göngustíg í nágrenninu.

Ekkert af þessu þarf að skila tekjum eða vekja aðdáun annarra. Það er nóg að okkur sjálfum finnist það þess virði.

Það þarf ekki allt að skila árangri

Við lifum á tímum þar sem ánægjan ein virðist stundum ekki duga.

Göngutúrinn þarf að skila ákveðnum skrefafjölda. Hjólatúrnum verður að fylgja tölfræði. Ljósmyndin þarf að fara á samfélagsmiðla. Og áður en langt um líður er áhugamálið orðið að litlu fyrirtæki með lógói og markaðsáætlun.

Við megum alveg gera eitthvað illa af því að okkur finnst það skemmtilegt.

Við megum spila á hljóðfæri án þess að halda tónleika, mála án þess að opna sýningu og rækta kartöflur án þess að koma okkur upp dreifikerfi.

Það þarf ekki að gera áhugamálið að enn einum prófsteininum á frammistöðu okkar. Stundum er einmitt svo gott við það að enginn er að gefa okkur einkunn.

Að leyfa sér að vera byrjandi

Það getur tekið á að byrja á einhverju nýju þegar maður eldist. Við erum vön að kunna til verka. Nú erum við allt í einu klaufsk, sein og jafnvel svolítið hlægileg.

Það fer misvel í okkur.

Byrjandinn þarf þó að gera ýmislegt sem vaninn hefur hlíft okkur við. Hann þarf að spyrja, hlusta, prófa sig áfram og sætta sig við að kunna ekki strax.

Sá sem lærir nýtt tungumál gleymir orðunum. Sá sem byrjar að æfa á hljóðfæri kemur öllu heimilisfólkinu í uppnám. Og byrjandinn í trésmíði kemst fljótt að því að viðurinn geymir mistökin, þótt hann sjálfur vilji helst gleyma þeim.

Framfarirnar geta verið hægar en þá fáum við að minnsta kosti tíma til að taka eftir þeim.

Við þurfum ekki öll að verða meistarar en það er gott að finna að við getum enn tekist á við eitthvað ókunnugt og smám saman náð tökum á því.

Þegar hugur og hendur vinna saman

Mörg áhugamál kalla bæði á einbeitingu og handtök. Garðyrkja, matseld, veiði, ljósmyndun, trésmíðar, viðgerðir og hljóðfæraleikur eru allt dæmi um það.

Það getur verið býsna notalegt að láta hugann og hendurnar vinna að sama verkefni.

Við sitjum mikið við skjái og tökum við upplýsingum sem margar eru gleymdar nánast áður en við höfum lokið við að lesa þær. Þegar við búum eitthvað til eða gerum við hlut sjáum við hins vegar hvað við höfum gert við tímann.

Eftir stendur kannski máltíð, ljósmynd, nýtt beð eða viðgerður stóll, jafnvel nokkrir spýtubútar sem passa betur saman en þeir gerðu um morguninn.

Karlar geta líka þagað saman

Það getur verið auðveldara að kynnast þegar menn hafa eitthvað sameiginlegt fyrir stafni.

Karlmönnum finnst kannski ekkert sérstaklega freistandi að hittast til að ræða tilfinningar sínar. En fáðu þá til að gera við bát, ganga saman að veiðiá eða rífast um hvernig eigi að brýna verkfæri og þá kemur samtalið oft af sjálfu sér.

Karlar þegja líka gjarnan saman. Þeir geta unnið hlið við hlið, veitt við sömu á eða drukkið kaffið sitt án þess að þurfa sífellt að segja eitthvað. Það getur verið góð samvera. Þögnin þarf hvorki að vera vandræðaleg né merki um að eitthvað sé að. Karlmenn sýna oft vináttu sína eingöngu með þögninni.

Hér á Íslandi er til starfsemi sem heitir Karlar í skúrnum. Þar vinna menn saman að ýmsum verkefnum í höndunum. Einn þeirra orðaði þetta á þá leið að karlar töluðu oft best saman öxl við öxl, frekar en andspænis hvor öðrum.

Mér finnst mikið til í því. Þegar verkefnið liggur fyrir framan báða þarf hvorugum að líða eins og hann sé kominn í viðtal. Þeir geta rætt það sem þeir eru að gera, þagað um stund og sagt svo eitthvað persónulegra þegar þeim finnst ástæða til þess.

Þannig geta mikilvæg mál komið inn í samtalið án þess að nokkur tilkynni að nú sé komið að alvarlegum umræðum.

Þetta getur hentað vel þeim sem hafa litla löngun til að setjast í umræðuhóp. Við sama vinnubekkinn getur verið pláss fyrir bæði samtal og þögn.

Það má líka njóta þess að vera einn

Það þurfa ekki öll áhugamál að snúast um félagsskap.

Lestur, skriftir, málverk, tónlist, göngur og garðyrkja geta gert stundirnar með sjálfum okkur bæði ánægjulegar og innihaldsríkar.

Það er ekkert að því að sækjast eftir næði. Maður sem kann vel við eigin félagsskap þarf ekki að fylla hvert kvöld af skipulögðu félagsstarfi til að sanna að hann eigi sér líf.

En gerur verið ástæða til að spyrja sig hvort það sem við gerum veiti okkur ánægju eða sé fyrst og fremst leið til að loka okkur af og láta dagana líða.

Það er munur á því að njóta næðis og draga sig smám saman út úr lífinu. Gott áhugamál getur opnað okkur nýjan heim, jafnvel þótt við fáumst við það ein.

Forvitnin fer ekki á eftirlaun

Börn mega prófa sig áfram. Fullorðnir verða smám saman feimnari við að kunna ekki hlutina. Þegar líður á ævina erum við mörg orðin sérfræðingar í að halda okkur við það sem við ráðum þegar við.

Það hlífir kannski stoltinu, en gefur forvitninni lítið svigrúm.

Við megum alveg breyta um stefnu án þess að þurfa að réttlæta það fyrir öðrum. Maður getur byrjað að skrifa sjötugur, lært ljósmyndun sjötíu og fimm ára eða sökkt sér í sagnfræði af því að einhver spurning lætur mann ekki í friði.

Nordic Wolves er mitt eigið dæmi um hvað getur gerst þegar maður lætur undan forvitninni. Eftir áratugi í læknisfræði er ég farinn að skrifa um heilsu, öldrun og líf karla á seinni hluta ævinnar. Þar nota ég starfsreynsluna en líka eigin spurningar, skoðanir og mistök. Að byggja upp vefsíðu og finna mér farveg í skrifum kallar á ýmislegt sem ég lærði ekki í læknadeildinni. Ég hef meira að segja náð að klambra saman vefsíðu þrátt fyrir að vera haldinn ákveðinni tölvufælni.

Ég hef metnað fyrir hönd Nordic Wolves en veit þó ekki nákvæmlega hvert verkefnið leiðir mig. Það er hluti af því sem gerir það spennandi. Ég er að byggja upp eitthvað sem mig langar að vinna að og rekst sífellt á eitthvað nýtt sem ég þarf að læra.

Aðrir finna þessa sömu tilfinningu við smíðabekkinn, í garðinum, yfir sögubók eða með hljóðfæri í höndunum. Viðfangsefnið er annað en forvitnin fær að ráða ferðinni.

Við þurfum ekki að vita fyrirfram hvar við endum til að leggja af stað.

Eitthvað til að hlakka til í vikunni

Vinnan heldur ákveðnum takti í vikunni, hvort sem okkur líkar það betur eða verr.

Þegar sá rammi hverfur geta dagarnir runnið saman. Máltíðir færast til, svefninn breytist og mánudagurinn verður ekkert sérlega frábrugðinn fimmtudeginum.

Áhugamál getur gefið vikunni aftur ákveðna festu. Á þriðjudögum er farið í sund. Á fimmtudögum er unnið í skúrnum. Á laugardögum er gengið, spilað eða hitt annað fólk sem hefur áhuga á því sama.

Það þarf enga heragaáætlun. Það er nóg að hafa eitthvað á döfinni sem mann langar að vakna til.

Hvaða áhugamál kallar á þig

Það er enginn opinber listi yfir viðurkennd áhugamál eftir starfslok.

Besta áhugamálið þarf hvorki að vera það gáfulegasta, erfiðasta né tilkomumesta. Það þarf að vera eitthvað sem okkur langar að snúa aftur að.

Það getur reynt á líkamann eða hugann, fært okkur félagsskap eða gert næðið ánægjulegra. Kannski verður eitthvað til sem hægt er að nota. Kannski ekkert sem hægt er að selja, sýna eða telja.

Það er alveg í lagi. Eftirmiðdagur sem við höfum ánægju af er einhvers virði í sjálfu sér.

Hvað langar þig að læra? Hvað fannst þér gaman að gera áður en vinnan og skyldurnar tóku mestallt plássið? Er eitthvað sem þig hefur lengi ætlað að prófa?

Við þurfum ekki að gera skil á hverri klukkustund. Hvíld og rólegheit eiga líka heima í góðu lífi.

En tíminn sem við eigum fram undan er hluti af ævinni okkar. Við megum velja að nota hann í eitthvað sem okkur langar til og gefur okkur ástæðu til að hlakka til morgundagsins.

 

Previous
Previous

Af hverju eldast sumir verr en aðrir?

Next
Next

Að vera einn er ekki það sama og að vera einmanna