Af hverju eldast sumir verr en aðrir?

Við þekkjum þetta öll.

Tveir menn eru jafngamlir samkvæmt þjóðskrá en þar virðist skyldleikanum ljúka.

Annar kemur rösklega inn, er með þrjú verkefni í gangi, ætlar að læra spænsku og hefur nýlega keypt sér rafmagnshjól sem hann kann ekki enn á. Hinn sest varlega niður, andvarpar og talar um sjötugsaldurinn eins og hann sé langvinnur smitsjúkdómur.

Þeir fæddust sama árið.

Samt virðist stundum sem annar sé sjötugur en hinn hafi verið það frá því hann varð fimmtíu og tveggja ára.

Af hverju eldast sumir verr en aðrir?

Einfalda svarið er að fólk fær mjög ólík spil á hendi. Erfðir skipta máli. Sama gildir um sjúkdóma, slys, fjárhag, starfsaðstæður, uppeldi og hreina tilviljun. Sumir þurfa frá upphafi að klífa mun brattari brekku en aðrir.

En þetta skýrir ekki allt.

Öldrun ræðst ekki aðeins af breytingum í líkamanum. Lífsreynslan skilur líka eftir sig spor. Viðbrögð okkar við breytingum skipta máli, sem og það hvort okkur finnst við enn eiga erindi við heiminn.

Kennitalan segir minna en við höldum

Við tölum stundum um aldur eins og hann sé nákvæm lýsing á manneskju.

„Hann er orðinn sjötugur.“

Setningin hljómar næstum eins og allir sjötugir menn komi úr sömu verksmiðju, með sama hugbúnað og sambærilega ábyrgðarskilmála.

En hinn dæmigerði eldri maður er ekki til.

Sumir eru tiltölulega hraustir þótt sjúkdómalistinn sé langur. Aðrir hafa fáar eða engar sjúksómsgreiningar en eiga samt erfitt með daglegt líf. Að eldast vel felst ekki endilega í því að sleppa við alla sjúkdóma. Það skipti meiru máli að geta áfram gert það sem maður vill og þarf að gera.

Þess vegna ættum við ekki aðeins að spyrja hversu gamall maður sé. Við þurfum líka að vita hvað hann getur gert, hvað hann langar að gera og hvort aðstæður hans leyfi það.

Maður getur verið með gervilið, heyrnartæki og lyfjabox á stærð við veiðitösku en samt lifað virku og innihaldsríku lífi.

Annar nokkuð hraustur maður getur verið laus við alla slíka fylgihluti en varið mestum hluta dagsins í að bíða eftir kvöldfréttunum.

Kennitalan segir hve lengi hversu mörg ár maður hefur lifað.

Hún segir ekki endilega hversu mikið líf er í tilverunni.

Sumir fá betri spil

Við verðum að byrja á því að viðurkenna að lífið er á vissan hátt ósanngjarnt.

Við fæðumst ekki með sömu genin, líkamsgerð, skapgerð eða mótstöðu gegn áföllum. Við fæðumst heldur ekki inn í sambærilegar fjölskyldur, fjárhag eða öryggi.

Sumir komast langt fram eftir ævi án alvarlegra veikinda. Aðrir glíma snemma við sjúkdóma sem þrengja möguleika þeirra. Sumir sleppa við að lenda í slysum og verða fyrir áföllum. Aðrir fá hvert höggið á fætur öðru áður en þeir hafa náð að rétta úr sér eftir það síðasta.

Svo er það heppnin, sem fær sjaldan nægilegt vægi þegar fólk segir ævisögu sína.

Þegar vel gengur viljum við gjarnan þakka eigin skynsemi, dugnaði og sjálfsaga. Þegar illa gengur tökum kennum við frekar óhefni um.

Yfirleitt ræður hvort tveggja einhverju.

Maðurinn sem eldist vel kann að hafa tekið margar góðar ákvarðanir. Hann gæti líka hafa sloppið við sjúkdóma, slys, atvinnumissi eða sorgina sem aðrir menn urðu fyrir.

Það er því rangt að líta á þá sem eldast illa sem fólk sem hafi einfaldlega staðið sig illa í lífinu.

Öldrun er enginn vitnisburður um frammistöðu okkar.

Árin skilja eftir sig spor

Við eldumst ekki aðeins frá síðasta afmælisdegi.

Allt lífið fylgir okkur.

Áratugir af líkamlegu erfiði skilja eftir önnur ummerki en áratugir við skrifborð. Vaktavinna, fjárhagsáhyggjur, ábyrgð á öðrum, langvinn veikindi, missir og stöðugt álag geta smám saman minnkað svigrúmið til að takast á við næsta verkefni.

Eitt áfall þarf ekki að brjóta mann niður.

Þegar áföllin verða hins vegar mörg, hvíldin lítil og stuðningurinn takmarkaður getur maður siglt inn í efri árin með minni varasjóð en sá sem hefur siglt lygnari sjó.

Þetta sést ekki alltaf utan á fólki.

Við sjáum mann sem virðist hafa gefist upp og hugsum að hann ætti að taka sig saman í andlitinu. Við sjáum ekki endilega allt það sem hann hefur þegar þurft að upplifa og bera einn.

Sumir eldast því ekki hraðar af því að þeim sé minna í mun að standa sig.

Þeir hafa einfaldlega farið lengri leið en vegalengdin á kortinu gefur til kynna.

Varasjóðurinn skiptir máli

Þegar eitthvað bilar er gott að eiga eitthvað inni.

Það gildir um bankareikninginn og líklega flest annað í lífinu.

Fólk safnar með árunum margs konar varasjóði: þekkingu, félagslegum tengslum, fjárhagslegu öryggi, sjálfstrausti, húmor, hæfni til að leysa vandamál og reynslu af því að hafa áður komist í gegnum erfiða tíma.

Þegar veikindi, missir eða starfslok verða getur þessi varasjóður skipt miklu.

Sá sem missir vinnuna en á áhugamál, vini og hlutverk innan fjölskyldunnar missir ekki endilega sjálfsmynd sína um leið. Sá sem hefur skilgreint sig eingöngu út frá starfsheitinu getur hins vegar staðið eftir með nafnspjald sem enginn biður lengur um að sjá.

Starfslok eru einnig gott dæmi.

Sumir upplifa þau sem frelsi. Loksins gefst tími til þess sem alltaf sat á hakanum.

Aðrir upplifa þau sem brottrekstur úr eigin lífi. Síminn hættir að hringja, tölvupóstunum fækkar og enginn virðist lengur þurfa svar fyrir hádegi.

Fyrstu vikurnar geta verið notalegar.

Svo kemur í ljós að maður getur aðeins endurraðað verkfærunum í bílskúrnum ákveðið oft..

Við eldumst verr þegar heimurinn minnkar

Heimur fólks getur minnkað hægt og hljóðlega.

Fyrst hættir maður að fara eitthvert vegna þess að það er óþægilegt. Síðan hættir maður að hitta ákveðið fólk vegna þess að það krefst fyrirhafnar. Að lokum verður auðveldara að vera heima en að fara út. Smám saman hættir heimilið að vera bækistöð og verður að landamærum.

Félagsleg einangrun og einmannaleiki eru ekki sami hluturinn. Sumum líður vel einum en aðrir geta verið einmanna í fjölmenni. Þegar tengsl við annað fólk verða of lítil eða missa innihald sitt getur hvort tveggja þó haft áhrif á líðan og heilsu.

Karlar eiga það til að byggja félagslíf sitt að mestu í kringum vinnuna eða makann.

Þeir geta átt marga kunningja en fáa sem þeir hringja í án sérstaks tilefnis.

Þegar starfinu lýkur eða makinn fellur frá kemur í ljós að stór hluti félagslega burðarvirkisins stóð aðeins á einum eða tveimur stólpum.

Það er heldur seint að uppgötva þá að húsið er farið að hallast.

Góð tengsl verða ekki til við það eitt að safna nöfnum í símann. Þau þurfa tíma, áhuga og endurtekin samskipti. Einhver þarf líka öðru hverju að hringja fyrst.

Því miður virðast allir bíða eftir sama símtalinu í stað þess að taka af skarið..

Sumir hætta að vera forvitnir

Börn spyrja stöðugt hvers vegna.

Fullorðnir spyrja frekar hvort þetta sé virkilega nauðsynlegt.

Forvitni er meira en leið til að afla sér upplýsinga. Hún heldur tengslum okkar við heiminn lifandi. Sá sem prófar eitthvað nýtt þarf að taka eftir, læra og sætta sig við að vera ekki orðinn sérfræðingur eftir fyrstu fimm mínúturnar.

Það getur verið óþægilegt.

Margir karlar sem hafa haft gott vald á sínu fagi í áratugi eiga erfitt með að setjast aftur í byrjendasætið. Þeir vilja helst ekki snerta tæki nema þeir viti fyrirfram hvað allir takkarnir gera.

Ný tækni verður þá auðveldlega tákn fyrir allt sem er að breytast.

Ungt fólk talar við úrið sitt, bíllinn vill sjálfur ákveða hvenær hann bremsar og sjónvarpið heimtar lykilorð áður en eigandinn fær að horfa á fréttirnar.

Það er skiljanlegt að maður verði tortrygginn.

En sá sem ákveður að allt nýtt sé vitleysa verndar sig ekki aðeins gegn ruglingi. Hann lokar líka dyrum.

Maður þarf ekki að elta hverja nýjung. Það væri full vinna og illa launuð. Hæfnin til að læra, spyrja og prófa heldur okkur hins vegar inni í samtímanum.

Það er munur á því að hafa lifað lengi og að vera hættur að endurskoða hugmyndir sína í breytilegum heimi..

Aðlögunarhæfni er vanmetin

Með aldrinum þurfum við sífellt að endurskoða áætlanir okkar.

Það sem áður gekk auðveldlega tekur kannski lengri tíma. Aðferðir sem dugðu í þrjátíu ár hætta stundum að virka. Hlutverk breytast, fólk hverfur úr lífi manns og framtíðin verður ekki alveg sú sem við höfðum séð fyrir okkur.

Sumir laga sig að aðstæðum.

Aðrir eyða mikilli orku í að agnúast út í veruleikann.

Það er eðlilegt að syrgja það sem glatast. Enginn þarf að taka öllum breytingum með brosi og kalla þær spennandi tækifæri. Fólk sem talar þannig er oft annaðhvort að selja námskeið eða hefur ekki enn lent í breytingunni sjálft.

En aðlögun er ekki uppgjöf.

Hún felst í því að finna nýja leið að því sem skiptir máli þegar sú gamla lokast.

Maður sem getur ekki lengur sinnt fyrra hlutverki sínu getur orðið leiðbeinandi, stuðningsmaður eða miðlað reynslu sinni áfram. Sá sem getur ekki ferðast með sama hætti og áður getur enn kynnst nýju fólki og nýjum hugmyndum. Hjálpartæki skerða ekki endilega sjálfstæðið; oft er það einmitt hjálpartækið sem varðveitir það.

Það er merkilegt hvað við getum verið stoltir.

Sumir vilja frekar missa af heilu samtali en nota heyrnartæki. Síðan kvarta þeir yfir því að fólk tali óskýrt og hafi almennt ekkert merkilegt að segja.

Tilgangur þarf ekki að vera stórkostlegur

Fólk eldist oft betur þegar það hefur ástæðu til að fara á fætur.

Ástæðan þarf ekki að vera háleit.

Það þarf ekki að stofna fyrirtæki, skrifa bók eða bjarga heiminum fyrir morgunkaffið. Tilgangur getur falist í að sinna fjölskyldu, rækta vináttu, sjá um garðinn, læra eitthvað, hjálpa öðrum eða mæta reglulega á stað þar sem einhver tekur eftir því ef maður kemur ekki.

Það skiptir máli að þörf sé fyrir mann.

Samt er skynsamlegt að eiga tilgang sem byggist ekki eingöngu á því að aðrir þurfi stöðugt á manni að halda. Börnin verða sjálfstæð, vinnufélagarnir fá nýjan yfirmann og barnabörnin verða á endanum of upptekin til að hlusta á sömu söguna í fjórða sinn.

Þá er gott að eiga eigin verkefni.

Við höldum stundum að eldra fólk eigi fyrst og fremst að hafa það notalegt, hvíla sig, fara rólega og passa sig á öllu.

En endalaus þægindi geta orðið merkilega óþægileg.

Við þurfum öryggi, en við þurfum líka áskorun, ábyrgð og eitthvað sem er enn ólokið.

Kannski eldast sumir verr vegna þess að samfélagið hættir smám saman að gera ráð fyrir framlagi þeirra. Eftir nokkurn tíma fara þeir sjálfir að trúa því að þeirra sé ekki lengur þörf.

Bjartsýni er ekki afneitun

Bjartsýni hefur stundum slæmt orð á sér.

Við sjáum fyrir okkur mann sem brosir í gegnum allt, límir uppörvandi setningar á ísskápinn og fullyrðir að krabbamein, skuldabréf og bilaðar mjaðmir séu fyrst og fremst spurning um hugarfar.

Það er afneitun með fallegu letri.

Raunsæ bjartsýni er einfaldari. Hún felst í þeirri trú að þótt staðan sé erfið sé líklega hægt að gera eitthvað. Ekki allt, en eitthvað.

Slík afstaða hefur áhrif á hegðun. Sá sem telur breytingu mögulega er líklegri til að leita sér aðstoðar, halda sambandi við fólk, prófa nýja lausn og gera nýjar áætlanir. Sá sem er fyrirfram viss um að ekkert gagnist fær sjaldan tækifæri til að komast að hinu gagnstæða.

Viðhorfið læknar ekki sjúkdóma og breytir heldur ekki þeim genum sem maður fékk.

En það getur ráðið því hvort maður nýtir þá möguleika sem enn eru fyrir hendi.

Húmor er líka varasjóður

Húmor læknar ekki allt.

Hann greiðir ekki reikningana, endurheimtir ekki heyrnina og heldur engum ungum.

En hann getur minnkað bilið milli okkar og vandans.

Sá sem getur hlegið að eigin uppákomum gerir ekki lítið úr alvöru lífsins. Hann lætur hana einfaldlega ekki taka yfir alla tilveruna.

Með aldrinum fjölgar atvikum sem bjóða upp á slíkt sjónarhorn.

Maður gengur ákveðinn inn í herbergi og man ekki erindið. Fer aftur út og man þá skyndilega hvað hann ætlaði að gera. Snýr við og gleymir því aftur.

Þetta er ekki alltaf sjúkdómseinkenni.

Stundum er herbergið einfaldlega illa skipulagt.

Húmor hjálpar okkur að viðurkenna breytingar án þess að sjálfsmyndin hrynji í hvert sinn. Hann auðveldar líka öðrum að vera nálægt okkur.

Það er erfitt að hjálpa manni sem túlkar hverja hjálparhönd sem móðgun og hverja ábendingu sem samsæri unga fólksins.

Við berum ábyrgð en ráðum ekki öllu

Það væri þægilegt að enda á einfaldri uppskrift.

Hugsaðu jákvætt. Eigðu góða vini. Vertu forvitinn. Finndu tilgang. Þá eldist þú vel.

Lífið virkar ekki þannig.

Sérhver maður getur gert margt rétt og samt veikst. Hann getur verið félagslyndur og samt misst fólkið sitt. Hann getur verið bjartsýnn og samt lent í áfalli sem breytir öllu.

Við ráðum hvorki spilunum sem gefin eru né því hvenær borðið veltur.

Oft höfum við þó áhrif á hvernig við spilum úr því sem við fáum.

Við getum ræktað tengsl áður en við þurfum sárlega á þeim að halda. Við getum haldið áfram að læra áður en heimurinn verður okkur framandi. Við getum fundið ný hlutverk áður en þau gömlu hverfa og þegið hjálp án þess að líta á hana sem yfirlýsingu um ósigur.

Við getum líka haft í huga að sá sem virðist eldast illa hefur kannski fengið mun erfiðari spil en við.

Að eldast vel er ekki fegurðarsamkeppni

Að eldast vel felst ekki í því að líta út fyrir að vera fimmtugur þegar maður er sjötugur.

Það krefst þess heldur ekki að maður sé laus við allar sjúkdómsgreiningar, þurfi aldrei hjálp eða standi alltaf teinréttur í fjallshlíð eins og á auglýsingamynd.

Að eldast vel getur falist í að halda áfram að hafa áhuga, tengsl, áhrif og einhverja stjórn á eigin lífi, jafnvel þegar líkaminn og aðstæðurnar setja skorður.

Sumir fá meira svigrúm til þess en aðrir. Sumir þurfa að endurskipuleggja lífið oftar og með meiri fyrirhöfn.

En ef til vill liggur mikilvægasti munurinn í því hvernig fólk lítur á árin sem eftir eru.

Sumir sjá þau sem síðustu kafla bókar sem þeir eru enn að skrifa.

Aðrir telja að sagan sé búin og eyða restinni af tímanum í að lesa aftur kápuna.

Við getum ekki ákveðið hversu margir kaflarnir verða.

En meðan enn er hægt að bæta við einni setningu er bókin ekki búin.

Previous
Previous

Er hægt að kaupa sér betri heilsu?

Next
Next

Áhugamál eru ekki bara til að eyða tímanum